Hann er jafn sterkur og sitt eigið tekíla

Grjóthörð mynd af Dwayne Johnson að smakka tekíla.
Grjóthörð mynd af Dwayne Johnson að smakka tekíla. mbl.is/Instagram_therock

Eftir langa bið og allskyns prófanir er „MANA“ loksins að koma á markað.

Kletturinn sjálfur, Dwayne Johnson, hefur staðið í ströngu við að fullkomna hinn eina sanna tekíla drykk, en hann sótti um einkaleyfi á vörumerkinu MANA, fyrir tæpu ári síðan sem gekk þó eitthvað illa eftir.

Tekíla er uppáhalds áfengi drykkur Dwayne sem sést oft sötra á einum slíkum á samfélagsmiðlum. Orðið MANA leikur stórt hlutverk í menningarheimi fólks á Havaí og í Pólýnesíu – en orðið merkir „andi“.

Dwayne Johnson tilkynnti á Instagram síðu sinni að MANA væri loksins orðið að veruleika. Sjálfur væri hann búinn að „standa í ströngu“ með að smakka og útkoman væri frábær.

mbl.is/Instagram_therock
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert