Lífsbætandi lambalæri Lindu Ben

mbl.is/Linda Ben

Hér eru við að tala um svo mikil huggulegheit að maður hreinlega spyr sig hvenær sá dagur renni upp að Linda Ben bjóði okkur í mat. Smekklegheitin ríða ekki við einteyming hér því ekki nóg með að við fáum algjörlega frábæra uppskrift að lambalæri heldur fáum við líka að skyggnast á bak við tjöldin í eldhúsi Lindu.  

Fáránlega fínt alveg hreint...

Lambalæri ofnsteikt með hasselback-kartöflum

  • Meðalstórt lambalæri
  • 3-4 hvítlauksgeirar
  • Ferskt rósmarín
  • ¾ dl ólífuolía
  • 1 tsk þurrkuð steinselja
  • 1 tsk þurrkað rósmarín
  • 1 tsk þurrkað oreganó
  • 1 tsk sítrónupipar
  • 1 tsk salt
  • 1 tsk paprika
  • 8 stk bökunar kartöflur
  • 5-6 hvítlauksgeirar

 Aðferð:

  1. Skerið nokkur göt um allt lambalærið, skerið hvítlaukinn í grófar sneiðar og stingið þeim inn í götin ásamt rósmaríni. Setjið ólífuolíu í skál ásamt kryddum, blandið saman og berið olíuna svo á lambalærið, passið að setja vel inn í götin líka. Setjið lærið á bakka og lokið með plastfilmu, látið marinerast inni í kæli í a.m.k.
  2. Takið lambalærið út úr ofninum og leyfið því að ná stofuhita áður en það er sett í ofninn.
  3. Kveikið á ofninum og stillið á 200 C.
  4. Skolið kartöflurnar vel og vandlega, skerið í þær ⅔ niður með 2 mm millibili, passið að skera alls ekki kartöflurnar í sundur. Kryddið með salti og ólífuolíu, nuddið þær þannig að olían og saltið fari niður í skurðina. Raðið kartöflunum í stórt eldfast mót í kringum lambalærið. Raðið hvítlauksgeirum og ferskum rósmarínstilkum um mótið líka. Bætið við meiri ólífuolíu og kryddum ef ykkur finnst vanta. Bakið í ofni í 1 klst. og 20 mín. en fylgist vel með, ef lærið byrjar að brúnast of mikið þá smellið álpappír yfir. Leyfið lærinu að standa í 10 mín. áður en það er skorið. Skreytið með fersku rósmarín og sítrónuberki.
mbl.is/Linda Ben
mbl.is/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert