Prófar að fasta í tvo daga

Albert Eiríksson hér ásamt Tobbu Marínós. Eins og sjá má …
Albert Eiríksson hér ásamt Tobbu Marínós. Eins og sjá má eru þau ekki að fasta þegar þessi mynd er tekin. Haraldur Jónasson / Hari

Albert Eiríks ákvað að fasta á dögunum enda flestir sammála um ágæti þeirra. Hann segist hafa prófað ýmsar aðferðir föstu en nú hafi hann langað að prófa að fasta eingöngu með vatni.

Hann fékk vinkonu sína, Elísabetu Reynisdóttur, næringarfræðing til að leiða hann í gegnum ferlið.

„Eftir að hafa skoðað allskonar valkosti þá valdi ég vatnsföstu í 48 klukkutíma. Vatnsfasta er ekki flókin og það eina sem er neytt er vatn og ekkert annað svo sem föst fæða á þeim tíma sem fastan á sér stað. Mælt er með föstunni í einn, tvo eða jafnvel fleiri daga og er slík fasta talin hafa margvísleg heilsufarslega ávinning. Vatnsfasta getur ýtt undir þyngdarlosun, styrkt ónæmiskerfið og talið hjálpa til við að hægja á öldrun líkamans. Vatnsfasta er talin örugg og áhrifarík en jafnframt þarf að fara rétt að föstunni.
Að drekka aðeins vatn í tvo til þrjá daga getur haft góð áhrif á flesta. Vatnsfasta er ekki fyrir alla og alls ekki einstaklinga með undirliggjandi sjúkdóma, barnshafandi konur og einstaklinga sem eru of léttir,“segir Albert um þessa reynslu sína.

Hér að neðan má finna góð ráð og punkta frá Alberti og Elísabetu um hvað vatnsfasta sé, ávinningur hennar og aðferðarfræðin.

Hvað er vatnsfasta?
Aðeins er drukkið vatn á þessu tímabili meðan, engin föst fæða. Tíminn getur verið allt frá 24 klukkutímum upp í 5 til 7 daga.
Yfirlitsgrein frá 2015 sýnir árangur þess að fasta en tekið mið af hvernig er fastað. Á vatnsföstu er aðeins drukkið vatn yfir daginn.
Einnig er hægt að bæta við vatnið ferskum sítrónusafa, cayenne pipar og hunangi í volgt vatn (að morgni) á meðan á föstunni stendur.

Mögulegur ávinningur að fasta?
Að fasta í einn til tvo daga með því að drekka aðeins vatn getur hjálpað til við að örva efnaskiptin og endurnýja frumumyndun. Þegar líkaminn fer í ketósu, en það er þegar líkaminn breytir próteini/aminósýrur í glúkósa og síðan fitu í ketóna og heilinn notar ketóna sem orkugjafa í staðinn fyrir glúkósa. Þannig er gengið á fitubirgðir líkamans. Því er vatnsfasta hugsuð sem snögg leið að léttast.

Aðferð
Mikilvægt að borða rétta fæðu tveimur dögum fyrir föstuna, þannig er líkaminn betur undir það búinn að taka aðeins við vatni á meðan á föstunni stendur.
Mælt er með að tveimur dögum fyrir föstuna að borða aðeins sterkjuríkt gufusoðið grænmeti (kartöflur, gulrætur og gulrófur) ásamt öllum ávöxtum og grænmeti. Auka vatnsdrykkjuna og minnka líkamlega áreynslu.
Mikilvægt áður en fastað er að hafa ekki neytt áfengis eða kaffi eða koffín/orku drykkja. Skerið niður fæðu sem inniheldur sykur og það á einnig við drykki með sykri eða aukaefnum.
Sleppa allri líkamsrækt þegar fastað er.
Notið góða tónlist, þurrburstið líkamann og notið hollar olíur til að bera á hann. Forðist stressi og álag.

Vandamál sem geta komið upp
Þreyta, hausverkur og svefnleysi eru vandamál eða óþægindi sem geta komið upp á dögum föstunnar. Mikilvægt að drekka nóg vatn.
Mæli með ráðgjöf næringarfræðings og hefur Elísabet Reynisdóttir næringarfræðingur, vinkona mín hún hjálpað mér að finna út úr þessa með sinni faglegu innsýn, skemmtilegum pælingum og fróðleik.

Albert Eiríksson.
Albert Eiríksson. Kristinn Magnúsosn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert