Hið fullkomna meðlæti

Hversu girnilegir tómatar!
Hversu girnilegir tómatar! mbl.is/Becky Hardin - The Cookie Rookie

Þessir tómatar munu vekja upp mikla gleði er þeir lenda á borðinu. Hér er uppskrift að bökuðum tómötum með haug af osti sem passa nánast með öllum mat.

Bakaðir tómatar með haug af osti

  • 4 stórir tómatar
  • 1 bolli mozzarella
  • 1 bolli parmesan
  • ½ bolli fersk basilika, skorin
  • Ólífuolía

Aðferð:

  1. Hitið ofninn á 200°C.
  2. Skerið tómatana í þykkar sneiðar og leggið á bökunarpappír á bökunarplötu.
  3. Leggið parmesan ofan á hverja sneið og því næst mozzarella.
  4. Stráið basiliku yfir og dreypið ólífuolíu yfir allt saman.
  5. Bakið í 8-10 mínútur þar til osturinn hefur bráðnað. Stillið þá á grill og bakið áfram í 2-3 mínútur.
  6. Berið strax fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert