Geggjaður réttur með rækjum

Uppskrift sem þú verður að prófa.
Uppskrift sem þú verður að prófa. mbl.is/Becky Hardin - The Cookie Rookie

Þessar rækjur eru akkúrat það sem þú þarft á að halda þessa dagana. Þær eru með fullkomið magn af kryddum og eru frábærar sem forréttur, aðalréttur, út á salat, hrísgrjón eða taco-skeljar.

Geggjað rækjumeðlæti

  • 4 msk. smjör
  • 450 g rækjur
  • Salt og pipar
  • 1 tsk. hvítlauks paste
  • 1 msk. chili pepper paste (eða red pepper paste)
  • 1 msk. ferskur sítrónusafi
  • 1 tsk. þurrkuð steinselja
  • ½ tsk. þurrkaðar rauðar piparflögur

Aðferð:

  1. Hitið 2 msk. af smjöri á pönnu á meðalhita.
  2. Kryddið rækjurnar með salti og pipar.
  3. Setjið rækjurnar á pönnuna og bætið hvítlauks og chili paste út á. Veltið upp rækjunum í 4-5 mínútur þar til rækjurnar verða bleikar á lit.
  4. Bætið við sítrónusafa og restinni af smjörinu og hrærið í á meðan.
  5. Dreifið jurtum yfir og berið fram.
mbl.is/Becky Hardin - The Cookie Rookie
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert