Eru uppþvottavélar með hnífaparaskúffu betri?

Hvernig finnst þér best að raða í uppþvottavélina?
Hvernig finnst þér best að raða í uppþvottavélina? mbl.is/whiteaway.dk

Að velja nýja uppþvottavél, eða í raun eitthvert annað heimilistæki, setur mann í þá stöðu að þurfa að velja hvað henti manni best. Við skoðum hvaða vélar eru sparneytar og svo má ekki gleyma verðmiðanum. En hver er munurinn á uppþvottavél með eða án hnífaparaskúffu?

Nokkur atriði til að hafa í huga:

  • Ef vélin er með þessa dæmigerðu hnífaparakörfu er best að stilla skaftinu á hnífapörunum niður til að þau þrífist hvað best. En að sama skapi eru meiri líkur á að þú stingir þig á beittum hníf eða gaffli þegar þú tæmir vélina eftir þvott. Þetta gerist ekki í vél með hnífaparaskúffu.
    Hnífaparaskúffa liggur lárétt í vélinni og þú snertir einungis skaftið á hnífapörunum þegar þú leggur þau í eða tæmir – og kemur ekki til með að stinga þig á beittum hnífi eins og getur gerst er þú tæmir hnífaparakörfu.
  • Í hnífaparakörfu er best að láta hnífapörin vera blönduð í hólfunum til að þau þrífist hvað best, en í skúffu getur þú nokkurn vegin raðað hnífum saman, göfflum saman o.s.frv. sem auðveldar mikið þegar gengið er frá úr vélinni.
  • Með því að velja hnífaparaskúffu ertu í leiðinni að fá meira pláss fyrir potta og stærri ílát í vélina.  
  • Ef þú sérð heilt fjall fyrir þér við að raða hnífapörunum í bakkann, þá ertu kannski meira týpan til að velja körfu. Þetta er í raun allt spurning um hvar þolinmæðins-þröskuldurinn þinn liggur. Önnur ástæða til að halda sig við körfu er að hnífaparabakki tekur pláss úr efri skúffunni í vélinni og ef þú ert með mjög há spariglös eða annað sem þurfa þetta pláss þá er bakkinn ekki fyrir þig.

Spurningin er því sú, hvernig muntu nota vélina þína – ertu skipulagða týpan eða setur þú tímann fyrir þig? Flestir vilja meina að hnífaparabakki sé það allra besta en það gæti vel verið að karfan sé það besta fyrir þig.

Choreograph
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert