Svölustu þvottahús síðari ára

mbl.is/Elle Decor

Þvottahús geta verið griðarstaðir heimilisins eða algjörar ruslakompur. Það er nákvæmlega ekkert sem segir að þvottahús þurfi að vera leiðinleg og óspennandi. Þvert á móti er nauðsynlegt að hafa þau sem allra best (og skipulögðust) því grunnurinn að góðu heimilishaldi er í vel skipulögðu þvottahúsi. 

Þetta er algjörlega geggjað þvottahús. Veggfóðrið tekur það upp á …
Þetta er algjörlega geggjað þvottahús. Veggfóðrið tekur það upp á næsta stig og gott betur. mbl.is/Elle Decor
Hvítt og brjálæðislega stílhreint.
Hvítt og brjálæðislega stílhreint. mbl.is/Elle Decor
Fallegt veggfóður en ég hefði alltaf sett borðplötu ofan á …
Fallegt veggfóður en ég hefði alltaf sett borðplötu ofan á vélarnar til að fá gott vinnurými. mbl.is/Elle Decor
Þetta veggfóður er algjörlega truflað en hægt er að framkalla …
Þetta veggfóður er algjörlega truflað en hægt er að framkalla sama mynstur með málningu einni saman. Hér hefði ég einnig haft báðar vélarnar á gólfinu. Sett borðplötu ofan á og haft tvo efri skápa. Þá hefði vinnurýmið orðið helmingi meira. mbl.is/Elle Decor
Hver segir að það sé ekki málið að vera með …
Hver segir að það sé ekki málið að vera með myndlist á veggjunum í þvottahúsinu. mbl.is/Elle Decor
Geggjaðar doppur!
Geggjaðar doppur! mbl.is/Elle Decor
Hvílíkt rými. Nóg pláss en ekkert vinnurými. Ein af þessum …
Hvílíkt rými. Nóg pláss en ekkert vinnurými. Ein af þessum góðu hugmyndum sem litu vel út á teikningum en virka ekki nógu vel í raunveruleikanum. Hér væri góg að setja borðplötu ofan á vélarnar. mbl.is/Elle Decor
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert