Hakk og spaghetti - tekið upp á næsta plan

mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson

Hver elskar ekki hakk og spaghetti? Hér erum við með uppskrift að þessum elskaða rétt sem búið er að taka upp á næsta stig.

Það er enginn annar en Læknirinn í eldhúsinu sem á heiðurinn að þessari snilld og eins og alþjóð veit þá klikkar hann ekki.

Hakk og Spaghetti 2.0 - einfaldur og ljúffengur hversdagsmatur

Fyrir fimm

  • 500 g spaghetti
  • 500 nautahakk
  • ½ hvítur laukur (átti afgangs frá því um helgina)
  • ½ rauður laukur (átti afgangs frá því um helgina)
  • 1 pakki af parmaskinku
  • 200 ml nautasoð
  • 150 ml rjómi
  • 75 g smjör
  • salt og pipar (ekki svo mikið af salti þar sem parmaskinkan er heldur sölt)

Aðferð:

  1. Allar góðar uppskriftir byrja á því að bræða smjör á pönnu. Það er ekkert að því að bæta smá jómfrúarolíu saman við. Það drepur engan.
  2. Rífið parmaskinkuna í bita.
  3. Skerið laukinn smátt.
  4. Steikið öll herlegheitin á stórri pönnu.
  5. Steikið nautahakkið vandlega að utan, saltið og piprið. Bætið nautasoðinu saman við og sjóðið niður um helming. Því næst rjómanum og sjóðið aftur niður.
  6. Sé einhver afgangur af rauðvíni helgarinnar er kjörið að það fái að mæta örlögum sínum í þessari kjötsósu. Ef þið eruð að nota rauðvín gætið þess að að setja það bara á undan nautasoðinu og látið það sjóða rækilega niður. Eins mætti vandræðalaust bragðbæta þetta með tómatmauki en ég lét það vera þar sem mig langaði til að gera þessa kjötsósu alveg án tómata.
  7. Sjóðið svo sósuna niður þannig að hún verði þétt og falleg.
  8. Á meðan sósan kraumar er spaghetti soðið í vel söltuðu vatni. Bætið nokkum matskeiðum af pastavatninu saman við kjötsósuna.
  9. Ég notaði bragðbætta jómfrúarolíu til að krydda það sem ég hafði sett á diskinn minn. Hún er það bragðmikil að ég var ekkert að bæta henni út í alla sósuna.
  10. Verði ykkur einstaklega að góðu!
  11. Endilega kíkið á þáttinn minn á Sjónvarpi Símans á fimmtudögum klukkan 20:10 eða í Sjónvarpi Símans Premium þar sem öll serían af Lambið og miðin er fáanleg.
mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson
mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson
mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert