Sjáið hvað Jessica Simpson á nóg af í frysti

Jessica Simpson átti brösulega meðgöngu en það er allt á …
Jessica Simpson átti brösulega meðgöngu en það er allt á uppleið hjá dívunni í dag. mbl.is/etonline.com

Þið sem fylgdust með meðgöngu Jessicu Simpson vitið þá að hún glímdi við ýmislegt þessa mánuði – biluð klósett, bronkítis og allt þar fram eftir götunum. Eftir að hún eignaðist þriðja barnið sitt, Birdie Mae, hafa hlutirnir þó gengið örlítið betur því eitt af því sem virðist ganga mjög vel hjá henni er að framleiða brjóstamjólk.

Jessica birti nýverið mynd á Instagram af stútfullum frysti með brjóstamjólk. Hún virðist mjólka út fyrir öll endimörk og hefur pakkað mjólkinni í góða geymslupoka sem hún svo merkir með dagsetningu. Það er nefnilega í góðu lagi að frysta brjóstamjólk og eiga nóg inni í „bankanum“ þegar þörf er á.

Enginn skortur á mjólk á þessu heimili.
Enginn skortur á mjólk á þessu heimili. mbl.is/Instagram_JessicaSimpson
mbl.is/Instagram_JessicaSimpson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert