Taco-kjúklingasalat sem engan svíkur

mbl.is/Berglind Guðmundsdóttir

Þetta dásamlega kjúklingasalat er bæði sumarlegt og sérlega bragðgott sem er tvenna sem svíkur engan. Það er Berglind Guðmunds á GRGS sem á heiðurinn að uppskriftinni sem við mælum svo sannarlega með. 

Taco-kjúklingasalat sem engan svíkur

  • 2-3 kjúklingabringur, t.d. frá Rose Poultry
  • icebergsalat eða annað salat að eigin vali
  • 1 paprika, skorin i teninga
  • 150 g kirsuberjatómatar, skornir í tvennt
  • 2 avacado, skorið í teninga
  • 1 rauðlaukur, sneiddur
  • ferskt kóríander
  • nachos, mulið
  • jalapeno í sneiðurm

MARINERING

  • 50 ml ólífuolía
  • 2 msk. ferskt kóríander, saxað
  • 2 hvítlauksrif, pressuð
  • 1 msk. chilíkrydd, t.d. frá Kryddhúsinu
  • safi úr 1 límónu

DRESSING

  • 2 msk. majones
  • 4 msk. rjómi
  • ⅓ af marineringunni
  • safi úr ½ límónu
  • salt

LEIÐBEININGAR

1. Byrjið á að útbúa marineringuna með því að hræra öllum hráefnunum saman. Takið ⅓ af marineringunni frá fyrir dressinguna og hellið afgangnum saman við kjúklinginn.

2. Hitið 1-2 msk. af olíu á pönnu og brúnið kjúklinginn á báðum hliðum. Látið þá í 200°C heitan ofn í 20-30 mínútur eða þar til hann er eldaður í gegn. Einnig er gott að grilla bringurnar. Leyfið að standa í smá stund áður en þær eru skornar.

3. Gerið dressinguna með því að blanda öllum hráefnunum saman og smakka til með salti.

4. Setjið salat, papriku,tómata, rauðlauk og avacado í salatskál.

5. Raðið kjúklingnum þar á og setjið ferskt kóríander, nachos og smá af dressingunni yfir.

mbl.is/Berglind Guðmundsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert