Opna veitingastað þar sem þjónarnir mata þig

mbl.is/Tastecard

Eruð þið tilbúin í nýjasta trendið? Á þriðjudag opnar veitingastaður sem er harla óvenjulegur því bannað er að nota hendurnar og munu þjónarnir ganga á milli og mata viðskiptavini.

Áður en þið ærist af skelfingu þá er búið að spá þessu sem næsta trendi og þessi veitingastaður sem heitir Hands Off er í London og verður aðeins opinn í fjóra daga.

Að auki mun allur ágóði renna til góðgerðamála.

Ef þið hafið áhuga á að prófa þá er heimilisfangið 71 Blandford Street í Marylebone, og opið verður frá 19 til 22 til 14 júní. Einungis einn matseðill er í boði og hann kostar tæpar 3.000 krónur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert