Mexíkó ostafylltir hamborgarar á grillið

mbl.is/

Þessi útfærsla af hamborgurum eru svo girnilegir að það kemur bókstaflega vatn í munninn og bragðlaukarnir ærast. Flóknara þarf það nefnilega ekki að vera. Bara skothelt meðlæti og borgari löðrandi í osti...

Mexíkó ostafylltir hamborgarar á grillið

Dugar í sex borgara

  • 1 kg nautahakk
  • 1 egg
  • 1 dl brauðrasp
  • ½ dl rjómi frá Gott í matinn
  • 1 Mexíkóostur, rifinn
  • 1½ tsk. sjávarsalt
  • 1 tsk. nýmalaður pipar
  • 6 sneiðar Óðals Cheddar

Aðferð:

  1. Hrærið öllu innihaldinu í hamborgara saman án þess að vinna hakkið of mikið.
  2. Mótið sex hamborgarabuff úr hakkblöndunni.
  3. Kryddið hamborgarann að utan með salti og pipar.
  4. Grillið svo við meðal- til háan hita þar til eldaðir í gegn. Um það bil 10-15 mínútur.
  5. Leggið þá ostinn yfir, lokið grillinu í u.þ.b. tvær mínútur eða þar til osturinn er alveg bráðnaður.
  6. Takið af grillinu og setjið borgarana saman.

Heimatilbúin hamborgarasósa

  • 1 dós 18% sýrður rjómi frá Gott í matinn
  • 4 msk. Grísk jógúrt frá Gott í matinn
  • 1 tsk. sítrónusafi
  • 1 msk. chillimauk (t.d Sambal oelek)
  • 1 msk. tómatsósa
  • 1 msk. sætt sinnep
  • Nokkrar súrar gúrkur, smátt saxaðar
  • Salt og pipar eftir smekk
Aðferð:
  1. Hrærið öllu innihaldinu saman og smakkið til með salti og pipar.

Meðlæti

  • Hamborgarabrauð
  • Grænt salat
  • Tómatasneiðar
  • Rauðlaukssneiðar
Thinkstock
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert