Beckham gæddi sér á íslensku sjávarfangi

David Beckham.
David Beckham. AFP

Eins og alþjóð veit var David Beckham staddur hér á landi á dögunum ásamt fríðu föruneyti. Hann er mikill aðdáandi lands og þjóðar eins og glöggt má sjá á Instagram-sögunni hans en þar fer hann yfir það helsta úr ferðinni.

Ljóst er að hópurinn fór í siglingu þar sem það besta var fiskað upp af hafsbotni og boðið upp á um borð. Um er að ræða hörpuskel og ígulker og drukkið var hvítvín með.

Beckham var greinilega ánægður með veitingarnar enda eru þær einstaklega bragðgóðar og við hvetjum landsmenn til að prufa það sem einhverjir snjallir markaðsmenn hafa kallað víkinga-sushi enda um hrávöru að ræða sem bragðast eins og sælgæti.

Fersk ígulker eru algjört sælgæti.
Fersk ígulker eru algjört sælgæti. mbl.is/Instagram
Hér er verið að draga úr sjó.
Hér er verið að draga úr sjó. mbl.is/Instagram
Hvítvín og ferskt sjávarfang!
Hvítvín og ferskt sjávarfang! mbl.is/Instagram
Allir hressir!
Allir hressir! mbl.is/Instagram
mbl.is/Instagram
mbl.is/Instagram
mbl.is/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert