Geggjaðar kryddaðar brauðbollur

Nýbakaðar bollur eru það allra besta á morgunverðarborðið.
Nýbakaðar bollur eru það allra besta á morgunverðarborðið. mbl.is/Columbus Leth

Við getum alltaf á okkur bollum bætt. Þessar ylvolgu bollur eru alveg ómissandi á morgunverðarborðið, og það besta er að þú hnoðar deigið deginum áður en þú bakar. Uppskriftin inniheldur sirka 15 bollur sem bakaðar eru í hring með fersku oreganó kryddi.

Brauðbolluhringur með oreganó

  • 15 g ger
  • 3,5 dl vatn
  • 2 msk. ólífuolía
  • 1 tsk. sykur
  • 1,5 tsk. salt
  • 50 g heilhveiti
  • 450 g hveiti
  • Handfylli ferskt oreganó

Aðferð:

  1. Sáldrið gerinu í vatnið og hrærið saman þar til gerið leysist upp. Bætið við olíu, sykri, salti og heilhveitinu. Bætið við hveitinu smátt og smátt.
  2. Hnoðið vel í matvinnsluvél í 5 mínútur, þar til deigið leysir sig frá hliðunum. Setjið plastfilmu yfir skálina og látið deigið hefast yfir nótt inn í ísskáp.
  3. Stráið hveiti á borðið og hnoðið örlítið upp úr deiginu og formið í sirka 15 bollur.
  4. Setjið bollurnar í smelluform, 25 cm, klætt með bökunarpappír. Leggið rakt viskastykki yfir bollurnar og látið hefast í forminu í 1 tíma.
  5. Hitið ofninn á 200°C. Penslið bollurnar með olíu og stráið oreganó yfir.
  6. Bakið bollurnar í ofni í um 20 mínútur eða þar til gylltar og bakaðar í gegn.
  7. Látið bollurnar kólna á rist og berið fram volgar með smjöri eða góðri ólífuolíu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert