Vandaðasta víngúmí í heiminum – líka fyrir vegan

Wally and Whiz er nýkomið til Íslands og er alveg …
Wally and Whiz er nýkomið til Íslands og er alveg einstaklega bragðgott handgert víngúmmí af bestu gerð. mbl.is/Wally and Whiz

Ef það er eitthvað sem við fáum aldrei nóg af þá eru það litlir molar sem kæta bragðlaukana. Og það er akkúrat það sem þessir ferköntuðu hlaupkubbar eru – gleðibomba fyrir eitt af skynfærum líkamans.

Wally and Whiz heitir fyrirtækið og var stofnað árið 2015 af Kristian Them Hansen í lítilli íbúð í hjarta kaupmannahafnar. Kristian hefur alltaf haft mikinn áhuga á víngúmmí og langaði að búa til gæðalega útgáfu af slíku sjálfur. Boltinn byrjaði að rúlla og er Wally and Whiz nú selt í 30 löndum víðsvegar um heiminn.

Hér er eingöngu notast við ferskt og gott hráefni og mikið lagt upp úr náttúrulegum gæðum – enda talað um háþróaðasta víngúmmí í heiminum. Það er vegan, glútenlaust og laktósafrítt og hægt er að velja úr 9 náttúrulegum bragðtegundum. Engin aukaefni, ónáttúruleg litarefni og bragðefni. En þess má geta að jarðarberin sem notuð eru í framleiðsluna eru lífræn.

Þessir bragðgóða víngúmmí er fáanlegt í versluninni Epal og ekki skemmir fyrir hvað pakningarnar eru smekklegar.

mbl.is/Wally and Whiz
mbl.is/Wally and Whiz
mbl.is/Wally and Whiz
mbl.is/Wally and Whiz
mbl.is/Wally and Whiz
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert