Nú þegar þjóðin þeysist um landið í útilegum og sumarbústaðaferðum eru matarmál ofarlega á baugi. Mikilvægt er að vanda fæðuval, þá ekki síst ef útivist og hreyfing er á dagskránni og forðast það í lengstu lög að fóðra fjölskylduna eingöngu á óhollustu. Hér koma undirstöðufæðutegundirnar sterkar inn eins og harðfiskur en það vill gleymast hversu mikil úrvalsfæða hann er.
Það segir sig því sjálft að harðfiskur er sérlega góður allan ársins hring og ekki síst á ferðalögum en þeim sem vilja ekki fá mylsnuna yfir allan bílinn er ráðlagt að kaupa harðfisk í bitum því þá kemur engin mylsna.