Smápítsa sem slær í gegn

Pítu pítsur eru algjör snilld í matinn.
Pítu pítsur eru algjör snilld í matinn. mbl.is/Winnie Methmann

Það er ótrúlega þægilegt og sniðugt að nota pítubrauð í pizzagerð. Hér eru brauðin skorin til helminga og eru hæfilega stór, og þá sérstaklega fyrir litla fingur. Það er upplagt að útbúa litlar pítu-pizzur fyrir næsta barnaafmæli og setja þá annarskonar hráefni ofan á – eða jafnvel leyfa krökkunum að setja á sína pizzu sjálf.

Pítu-pizza með pestó og þistilhjörtum

  • 6 pítubrauð
  • 140 g grænt pestó
  • 2 mozzarellakúlur
  • 1 kúrbít
  • 190 g þistilhjörtu
  • 50 g rucola

Aðferð:

  1. Hitið ofninn á 175°C.
  2. Skerið pítubrauðin í sundur þannig að þú ert komin með 2 helminga úr einu brauði. Leggið brauðin á bökunarpappír á bökunarplötu – látið ynnri hliðina snúa upp.
  3. Smyrjið brauðin með pestó. Dreyfið mozzarella yfir.
  4. Skerið kúrbítinn í þunnar sneiðar með kartöfluskrælara. Dreifið kúrbít og þistilhjörtum á pizzurnar.
  5. Bakið í ofni í 15 mínútur eða þar til osturinn hefur tekið smá lit.
  6. Toppið með rucola og berið strax fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert