Þjóðin hefur talað - eftirlætis Royal-inn valinn

Ást landans á Royal búðingi er mikil og nýverið fór fram kosning þar sem vinsælasta bragðtegundin var valin. Undir lokin var hörð barátta milli tveggja tegunda: karmellu- og súkkulaðis og svo virðist sem karmellan hafi borið sigur úr bítum á lokametrunum. 

Athygli vakti þó að samsettar bragðtegundir komu sterkar inn og voru menn mikið að blanda saman tveimur til þremur bragðtegundum með framúrskarandi árangri að eigin sögn. Það hefur löngum verið talin hin mesta skemmtun að gera margra laga Royal búðing þannig að greinilegt er að Íslendingar halda tryggð við búðinginn góða. 

Súkkulaðibúðingurinn fylgdi fast á hæla karmellubúðingsins.
Súkkulaðibúðingurinn fylgdi fast á hæla karmellubúðingsins.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert