Ískaffi eins og Ástralinn gerir það

Ískaffi með sódavatni - alveg eins og það þykir best …
Ískaffi með sódavatni - alveg eins og það þykir best í Ástralíu. mbl.is/Presse

Það sem fæstir vita er að Ástralir eru með alveg sérstakan ískaffikúltúr þar sem kaffið kemur í öllum formum. Kaffimenningin er eins litrík og dýralífið þar í landi en hér er ein uppskrift að mjög frískandi ískaffi sem inniheldur sódavatn og slekkur á þorstanum.

Ískaffi eins og Ástralinn gerir það

  • Klaki
  • 100 ml sódavatn
  • Ný uppáhelt expresso 
  • Jafnvel smá kókossýróp

Aðferð:

  1. Fylltu glas með klaka. Helltu upp á espressó eða annað sterkt kaffi.
  2. Ef þú notar sýróp skaltu blanda því saman við kaffið. Hellið esprossinu yfir klakann og fyllið upp með sódavatni.

- - -

Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita...

Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert