Það getur reynst erfitt að mæta til vinnu daginn eftir erfiða nótt. Kannski varstu of lengi úti á lífinu með aðeins of marga drykki við hönd. Eða nóttin fór í að gráta yfir sambandsslitum – hver veit? Ástæðurnar geta verið margskonar og þá er gott að kunna til verka, hvernig best sé að losna við bólgur í kringum augun og roða.
Klakapoki mun alltaf kæla andlitið en tepokar geta gert slíkt hið sama. Láttu tepokana sjúga í sig kalt vatn og legðu þá svo á augnlokin. Tepokarnir munu hjálpa til við að losna við bólgur í kringum augun og minnka roðann. En þessi aðferð virkar einnig ef þú hefur fengið glóðurauga.