Ofur einfalt súrdeigsbrauð

Nýbakað súrdeigsbrauð er tilvalið á morgunverðarborðið.
Nýbakað súrdeigsbrauð er tilvalið á morgunverðarborðið. mbl.is/©Anne Merete Thorstensen

Nýbakað brauð er það besta sem til er – sérstaklega um helgar. Nú þarftu ekki að fara út úr húsi næst þegar þig langar í nýbakað brauð því hér er uppskrift að ofur einföldu súrdeigsbrauði sem tekur smá tíma að gera en þú getur undirbúið deginum áður.

Ofur einfalt súrdeigsbrauð

  • 4 dl vatn
  • 5 g ger
  • 1 dl súrdeig
  • 600 g hveiti
  • 2 tsk. salt

Aðferð:

  1. Hrærið volgt vatn og ger saman í stóra skál.
  2. Bætið súrdeiginu út í (ef þú vilt hafa meira súrdeigsbragð getur þú skipt út smávegis af vatninu með meira af súrdeigi).
  3. Setjið hveitið út í smátt og smátt á meðan þú hrærir. Bættu saltinu út í.
  4. Deigið þarf ekki að vera mikið hnoðað, bara að hráefnin séu vel blönduð saman þar til deigið losnar frá skálinni. Deigið á að vera pínu blautt.
  5. Látið viskastykki yfir skálina og leyfið deiginu að hefast í 10-12 tíma.
  6. Stráið hveiti á borðið og setjið deigið á borðið. Hnoðið það aðeins til og setjið aftur í skálina í 2 tíma til viðbótar.
  7. Hitið ofninn á 250°C. Hér er upplagt að nota steypujárnspott sem þolir að koma inn í ofn.
  8. Þegar ofninn og potturinn er orðið heitt í gegn,  hellið þá deiginu í pottinn og setjið lokið á. Bakið í 30 mínútur. Takið þá lokið af og lækkið hitann í 230°C og bakið áfram í 15 mínútur.
  9. Takið pottinn úr ofninum og veltið brauðinu á rist. Látið kólna í 15 mínútur.
  10. Berið fram með góðri ólífuolíu, smjöri eða osti.
mbl.is/©Anne Merete Thorstensen
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert