Einfaldir en ómótstæðilegir kjúklingabitar

Þessi uppskrift er einföld en þó ekki með hefðbundnu sniði þar sem hráefnin eru sérlega exótísk og skemmtilegt. Auðveld eru uppskriftin þó og útkoman ætti engan að svíkja.

Það er matarbloggarinn og hjúkrunarfræðingurinn Ragna sem á heiðurinn að uppskriftinni en matarbloggið hennar er hægt að nálgast HÉR.

Uppskrift

8-12 kjúklingabitar að eigin vali

  • 1 msk. rifinn sítrónubörkur (af einni sítrónu)
  • 2 rifin hvítlauksrif
  • 1 msk. saxaðar ferskar kryddjurtir  - rósmarín og timian var fyrir valinu hér
  • (það er einnig hægt að nota 1 tsk. af þurrkuðum)
  • 1 tsk. saltflögur
  • 1 tsk. nýmalaður pipar
  • 3 msk. góð ólífuolía
  • safi úr einni sítrónu
  • 8-12 kjúklingabitar (leggir, læri, vængir)


Aðferð

  1. Öllu sem þarf í marineringuna blandað saman. Salt, pipar, kryddjurtum, hvítlaukur,  sítrónubörkur, ólífuolía, sítrónusafi
  2. Helt yfir kjúklingabitana og þeim velt um í marineringunni þar til þeir eru allir vel þaktir henni og látið standa á borði í 30 mín hið minnsta (eða allt að 12 klst í ískáp)
  3. Kjúklingabitunum raðað á grind sem er fyrir ofan ofnskúffu (svo bitarnir liggi ekki í safanum og safanum er safnað í ofnskúffuna fyrir neðan), restin af marineringunni úr skálinni er sett yfir bitana og svo eru þeir eldaðir í ofni á 190°C í 45 mínútur (yfir- og undirhita)

Annað:

  • Ég bar þetta fram með ofnbökuðum stökkum kartöflum, ofnbökuðu brokkolí, olífuolíu og kaldri hvítlaukssósu.
  • Þessa kjúklingabita er gott að grilla og sniðugt að eiga tilbúna í frysti til þess að taka með í útileguna. Setur þá frosna í kæliboxið og þeir halda kæliboxinu köldu á meðan þeir þiðna. Munið bara að það er mikilvægt að snúa svona bitum oft á grilli svo þeir brenni ekki áður en þeir eru tilbúnir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert