Staðurinn sem oftast gleymist að þrífa

Hvenær þreifstu ruslatunnuna í eldhúsinu seinast?
Hvenær þreifstu ruslatunnuna í eldhúsinu seinast? mbl.is/monkeybusinessimages/iStock/360/Thinkstock

Margir vinna með svokölluð „yfirborðsþrif“, sérstaklega þegar tími er til fyrir annað. En það er einn staður í eldhúsinu sem þú mátt alls ekki gleyma að þrífa.

Við erum að tala um ruslatunnuna og skápinn sem geymir tunnuna. Það er ótrúlegt hvað verður fljótt skítugt á þessum eina stað – sem er þó ekkert skrítið miðað við notkunina.

Ef þú vilt komast hjá því að vera með illa lyktandi skáp í eldhúsinu eftir gamlar matarleifar skaltu þrífa innan úr tunnunni að lágmarki einu sinni í viku. Og fyrst þú ert kominn í gang, þá munar þig ekkert um að strjúka innan úr skápnum í leiðinni.

mbl.is/Getty Images
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert