Albert mætti í glæsilegt kaffihlaðborð á Mýri

Glæsilegt hlaðborð hjá Guðrúnu á Mýri.
Glæsilegt hlaðborð hjá Guðrúnu á Mýri. mbl.is/Alberg Eiríksson

Þeir Albert Eiríksson og Bergþór Pálsson eru með skemmtilegri mönnum og nú gera þeir víðreist um landið ásamt Páli Bergþórssyni, föður Bergþórs og það vill svo skemmtilega til að þeir virðast allstaðar eiga heimboð. 

Nú síðast voru þeir mættir til hennar Guðrúnar á Mýri en að sögn Alberts þá kynntust þau í vetur þegar kvenfélagskonur úr Bárðardal sem brugðu sér í menningar- og skemmtiferð til Reykjavíkur. „Guðrún tók af okkur loforð að koma við í Bárðardal næst þegar við færum um landið. Þegar okkur bar að garði á föstudaginn var hún búin að bjóða nokkrum kvenfélagskonum að drekka með okkur kaffið. Það voru verulega undrandi ferðalangar sem hittu þessar glaðlegu konur aftur og óvænt – sannkallaðir fagnaðarfundir. Guðrún bakaði og útbjó heil ósköp af góðgæti sem hún lagði listafallega á borðið.“

„Dagrúnarkaka var þeirra útgáfa af snúðakökunni góðu sem smakkaðist afar vel eins og allt hitt. Þykkt heimasteikt flatbrauð með heimareyktu hangikjöti, reyktur silungur með nýbökuðum gerbollum, frómas með muldum marengs út í og ég veit bara ekki hvað og hvað. Líflegar umræður gerði kaffiboð enn betra. Fyrst var skálað í hollum grasadrykk sem byggður er á uppskrift Þórunnar grasakonu og í lokin var dreypt á túnfíflavíni. Svei mér þá ef þetta ástarsamband okkar við bárðdælsku kvenfélagskonurnar endar ekki með því að við förum á þorrablótið í dalnum.“

Ef einhverjir höfðu áhyggjur af því að íslensk kaffihlaðborð væru á undanhaldi þá þarf eigi að örvænta því veitingarnar voru eins og best verður á kosið og ljóst að kvenfélagskonur í Bárðardal eru engir aukvisar þegar kemur að því að galdra fram gómsætar veitingar. 

Albert, Sigrún Hringsdóttir, María Sigurðardóttir, Páll, Bergþór, Svanhildur Sigtryggsdóttir, Kristín …
Albert, Sigrún Hringsdóttir, María Sigurðardóttir, Páll, Bergþór, Svanhildur Sigtryggsdóttir, Kristín Ketilsdottir, Elín Baldvinsdottir og Guðrún Sveinbjörnsdottir. Á myndina vantar Sigríði Baldursdóttur. mbl.is/Alberg Eiríksson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert