Heitasta húsráðið til að þrífa ofninn

Við lumum á trixi næst þegar þú þrífur ofninn.
Við lumum á trixi næst þegar þú þrífur ofninn. mbl.is/bestinductioncooktopreview.org

Ertu búinn að taka ofninn í gegn nýlega? Ef ekki, þá skaltu prófa þetta næst – að hita hann áður en þú byrjar.

Við erum ekki að segja að þú eigir að hita ofninn í botn og brenna þig á fingrunum með tuskuna á lofti. En það er einfaldara að þrífa volgan ofn en kaldan.

Stillið ofninn á 250°C í 10-15 mínútur og slökkvið svo á honum. Úðið eða makið hreinsiefni inn í ofninn og látið standa í 20 mínútur. Skrúbbið með mjúkum bursta og notið svamp og tusku til að þrífa innan úr ofninum og ofninn verður skínandi hreinn. 

mbl.is/Thinkstock
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert