Kári og Sólveig Edda opnuðu draumastaðinn

Kári Þorsteinsson og Sólveig Edda Bjarnadóttir.
Kári Þorsteinsson og Sólveig Edda Bjarnadóttir.

Fyrr á þessu ári tóku þau Kári Þorsteinsson og Sólveig Edda Bjarnadóttir þá ákvörðun að flytja á heimaslóðir hennar til Egilsstaða og opna þar veitingastað. Staðurinn hlaut nafnið Nielsen og er ólíkur öðru því sem býðst á svæðinu. Hróður hans hefur farið víða og ljóst er að opnun hans er mikill happafengur fyrir héraðsbúa og nærsveitunga.

Þau hjónin eru engir aukvisar þegar kemur að veitingamennsku en Kári er matreiðslumeistari og fyrrum yfirkokkur á Dill en þar á undan á Kol og er því hokinn af reynslu. Sólveig Edda er markaðsfræðingur sem er fædd og uppalin á Egilsstöðum. Þau fluttu til Egilsstaða í mars og tveimur mánuðum seinna fæddist Nielsen fullskapaður..

Að sögn þeirra hjóna er áherslan á íslenskt hráefni af svæðinu. „Við erum með lítinn matseðill sem breytist ört í takt við það hráefni sem er fáanlegt og ferskast hverju sinni. Við verslum til dæmis mjög mikið af Vallanesi/Móðir jörð sem er með lífræna grænmetisræktun og byggræktun hér rétt fyrir utan Egilsstaði. Megnið af mjólkurvörum fáum við frá Fjóshorninu sem er framleiðsla Egilsstaðabýlisins. Fiskinn fáum við frá Borgarfirði eystri og stundum villtan lax af svæðinu líka. Svo er auðvitað hellingur af villbráð eins og gæs og hreindýri sem við ætlum að notum líka, Kári veiddi meira að segja hreindýrið sem er á seðlinum núna,“ segir Sólveig Edda um áherslurnar í matargerð. Í hádeginu er svo seðill sem tekur daglegum breytingum þar sem áherslan er á bragðgóðan og seðjandi heimilismat.

Sólveig Edda segir viðtökurnar hafi verið vonum framar og að þau hjónin séu sérstaklega ánægð með þann áhuga sem heimamenn og Austfirðingar almennt, hafa sýnt staðnum enda sé búið að vera nóg að gera undanfarið.

Öðruvísi brögð og hráefni

Markmiðið hafi verið að bjóða heimamönnum upp á bragðgóðan, ferskan og öðruvísi mat sem væri að mestu leiti á hráefni úr heimabyggð. „Maturinn er ólíkur öðru sem býðst á Egilsstöðum. Við vinnum mikið með hráefni sem kokkarnir sækja sjálfir eins og hvönn, kerfil, lerki og rabarbara sem maður sér ekki á mörgum matseðlum. Við erum líka með ótrúlega færa kokka sem geta töfrað fram ótrúleg og öðruvísi brögð en þeir leggja einnig mikið upp úr faglegu handbragði og nýtingu hráefnisins. Vinsælasti rétturinn hingað til hefur verið lambaprime-ið okkar sem hreinlega bráðnar í munni. En svo erum við farin að taka eftir því að fólk er að koma aftur og aftur til að fá sér eftirrétt sem er súkkulaði saltkaramella með mjólkurís og lerki, hann hefur verið mjög vinsæll!“

Sólveig Edda segir að þau hafi svo sem ekki vitað hverju þau ættu að búast við þegar þau opnuðu Nieslen. „Við vissum að við þyrftum að vinna mikið og að við yrðum frekar upptekin í sumar og það hefur svo sannarlega verið þannig, en þetta gengur ótrúlega vel og við höfum ekki yfir neinu að kvarta. Við ætlum að vera með opið allan ársins hring en yfir sumartímann er opið alla daga vikunnar en á veturna ætlum við að draga seglin saman og hafa opið fimm daga í viku.“

Í mörg horn að líta

Nieslen hefur, eins og áður segir, farið vel af stað og eru þau hjónin mjög sátt við byrjunina.  „Við gerðum okkur enga grein frir því hvernig þetta yrði en þetta hefur farið ótrúlega vel af stað og við erum mjög ánægð með móttökurnar,“ segir Sólveig Edda og bætir því við að það hafi helst komið þeim á óvart hvað aukaverkefnin séu drjúg og hvað það sé í mörg horn að líta til að reksturinn rúlli hnökralaust. „Allskonar lítil verkefni og atriði sem þarf að huga að en þetta er eitthvað sem lærist bara með tímanum en þetta er ótrúlega skemmtilegt. Ekki síst að fá gesti sem eru yfir sig ánægðir en svo finnst okkur sérstaklega gaman að fá fólk sem er forvitði og til í að prófa allskonar nýtt í matargerð. Fólk sem hefur margar spurningar og pælir mikið í hráefninu sem við erum að nota, það er svo gaman að gefa svoleiðis mataráhugafólki að borða.“

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert