Dásamleg döðlukaka með marengs

Við kynnum til leiks dúnamjúka döðluköku með stökkum marengstoppum.
Við kynnum til leiks dúnamjúka döðluköku með stökkum marengstoppum. mbl.is/Columbus Leth

Hér er ein af þessum kökum sem henta við hvert tilefni. Það þarf í raun ekki að vera neitt tilefni til að gæða sér á döðlutertu með marengs – því hún getur verið jafn hversdags eins og spari.

Dásamleg döðlukaka með marengs

Döðlukaka:

  • 200 g ferskar döðlur án steins
  • 1 tsk. natron
  • 2 dl sjóðandi vatn
  • 125 g smjör
  • 180 g muscovado-sykur (óunninn hrásykur)
  • 2 egg
  • 175 g hveiti
  • Salt á hnífsoddi
  • 1 ½ tsk. lyftiduft
  • ½ tsk. kanill
  • Smjör

Marengs:

  • 3 eggjahvítur
  • 1 tsk. sítrónusafi
  • 150 g sykur

Annað:

  • Smelluform 25 cm

Aðferð:

  1. Döðlukaka: Hitið ofninn í 180°C. Hakkið döðlurnar gróflega og stráið natron yfir. Hellið sjóðandi heitu vatni yfir og látið standa í 5 mínútur. Blandið saman í matvinnsluvél eða með töfrasprota þar til döðlumassinn er orðinn sléttur.
  2. Pískið smjörið og muscavado-sykurinn saman í 5 mínútur. Hrærið eggjunum út í, eitt í einu og sigtið hveiti, salt, lyftidufti og kanil út í.
  3. Veltið döðlumassanum varlega út í sykurblönduna og hellið deiginu í smurt form, klætt bökunarpappír í botninn. Bakið í 35 mínútur – og látið kökuna kólna í forminu.
  4. Marengs: Stillið ofninn á 250°C. Pískið eggjahvíturnar vel og bætið sítrónusafa og 4 msk. af sykri út í. Haldið áfram að þeyta þar til hvíturnar eru orðnar alveg stífar. Veltið restinni af sykrinum út í með skeið.
  5. Fyllið sprautupoka með marengs og notið stóran stjörnulagaðan stút. Sprautið marengstoppum á kökuna og bakið í ofni í 10 mínútur, eða þar til topparnir eru gylltir að lit.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert