Ráða tilfinningar þínar mataræðinu?

Af hverju eigum við það til að troða ofan í …
Af hverju eigum við það til að troða ofan í okkur mat? mbl.is/bbc.com

Borðum við því við erum svöng eða af því að okkur líður vel eða illa? Erum jafnvel stressuð eða leið! Sum okkar erum tilfinningalega tengd mataræðinu og sveiflumst fram og til baka með hvað við látum ofan í okkur.

Við borðum of mikið
Við getum átt það til að borða yfir okkur til að deyfa ákveðnar tilfinningar. Þegar þér finnst þú þurfa að borða af annarri ástæðu en hungri einu saman, dragðu þá djúpt inn andann og settu athyglina á andardráttinn. Taktu eftir því hvort þú sért svangur/svöng í raun og veru og hvað það er nákvæmlega sem þig langar í. Farðu jafnvel úr því umhverfi sem þú ert staddur/stödd í og drekktu stórt glas af vatni. Leiddu hugann að því sem þú ert þakklát/ur fyrir akkúrat á þessu augnabliki.

Núvitund
Það er gott að staldra aðeins við og leiða hugann að því sem er að gerast í kringum okkur. Vera í núinu. Hér eru nokkur atriði sem hafa má í huga þegar við erum að borða til að njóta betur matarins.

  • Slökktu á sjónvarpinu eða legðu frá þér bókina sem þú ert að lesa, allt sem tekur athyglina þína frá matnum sjálfum. Og alls ekki liggja yfir símanum á meðan þú borðar.
  • Reyndu að meta matinn sem er fyrir framan þig, hvaðan hann kemur.
  • Legðu frá þér hnífapörin við hvern munnbita.
  • Tyggðu matinn vel og virtu fyrir þér bragðið.
  • Taktu eftir því þegar maginn byrjar að verða saddur.
  • Taktu eftir því hvernig þér líður á meðan þú borðar og eftir matinn.
Stress getur fengið okkur til að borða of mikið.
Stress getur fengið okkur til að borða of mikið. mbl.is/scitecheuropa.eu
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert