Svona er best að nota vodka í rúminu

Vodka er ekki bara hressandi drykkur á laugardagskvöldi - það …
Vodka er ekki bara hressandi drykkur á laugardagskvöldi - það er einnig frábært til þrifa. mbl.is/naturallysavvy.com

Við erum ekki að biðja þig um að draga fram lime og tonic – en vodkaflöskuna viljum við sjá við næstu þrif.

Vodka kemur ekki bara við sögu á góðu laugardagskvöldi þar sem það getur þrifið rúmdýnuna þína betur en nokkuð annað búðarkeypt hreinsiefni. Alkóhólið í vodkanu drepur lyktandi bakteríur ásamt því að sótthreinsa dýnuna þína.

Það eina sem þú þarft að gera er að hella vodka í úðabrúsa og úða því jafnt yfir dýnuna. Leyfðu því alveg að þorna áður en þú setur hreint lak og nýtt á sængurnar. En þessi aðferð á einnig við um áklæði á sófum og jafnvel fatnaði svo eitthvað sé nefnt.

Ljósmynd/Thinkstockphotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert