Frábær fiskréttur sem þú verður að prófa

Fínasti fiskréttur með kókos og lime - borinn fram með …
Fínasti fiskréttur með kókos og lime - borinn fram með hrísgrjónum og brokkolí. mbl.is/bbcgoodfood.com

„Fínn og flottur“ – það má vel segja það um þennan fiskrétt sem við kynnum hér til leiks. Hráefni á borð við lime, hvítlauk og kókos mun leika við bragðlaukana sem aldrei fyrr.

Fínasti fiskréttur með kókos og lime

  • 2 lime
  • 100 g creamed coconut, skorið niður
  • 1 grænn chilli, saxaður
  • Handfylli kóríander
  • Engifer, skorið niður
  • 2 hvítlauksrif
  • ½ tsk. fiskisósa
  • 4 fiskbitar, hvítur fiskur að eigin vali
  • Soðin hrísgrjón
  • Brokkolí

Aðferð:

  1. Hitið ofninn á 200°C.
  2. Rífið með rifjárni utan af limeberkinum  og kreistið djúsinn úr. Blandið vel saman við chili, kóríander, kókos, engifer, hvítlauk og fiskisósu. Smakkið til og bætið við fiskisósu ef þörf er á.
  3. Setjið fiskinn á bökunarplötu  og dreifið blöndunni yfir fiskinn. Bakið í 15-20 mínútur eða þar til bakaður í gegn.
  4. Berið fram með soðnum hrísgrjónum og soðnum brokkolístönglum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert