Ómótstæðileg baka með aspas og tómötum

Girnileg og góð baka með aspas og tómötum.
Girnileg og góð baka með aspas og tómötum. mbl.is/Columbus Leth

Við ættum að gera bökur sem þessar oftar. Bökur eru einfaldar að gera en afskaplega góðar – og eru tilvaldar sem léttur kvöldmatur.

Gómsæt aspasterta með tómötum

Tertudeig:

  • 125 g hveiti
  • 75 g gróft hveiti (heilhveiti, spelt)
  • 1 tsk. salt
  • 75 g smjör
  • 2 msk. kalt vatn
  • Ferkantað tertuform, 22x22 cm

Aspasfylling:

  • 250 g grænn aspas
  • 200 g litlir tómatar
  • 3 egg
  • 2,5 dl rjómi
  • 1 tsk. dijon sinnep
  • 1 tsk. estragon
  • Salt og pipar

Hjartasalat með feta:

  • Hjartasalat
  • 1 msk. sítrónusafi
  • 1 tsk. dijon sinnep
  • 1 tsk. hunang
  • 3 msk. ólífuolía
  • Salt og pipar
  • 20 g pistasíuhnetur
  • 100 g fetaostur (eða fetakubbur)

Aðferð:

Tertuteig

  1. Blandið hveiti, grófu hveiti og salti saman í skál. Skerið smjörið í litla teninga og muldrið út í deigið með fingrunum.
  2. Bætið köldu vatni út í deigið og hnoðið (ekki of mikið). Pakkið deiginu inn í plastfilmu og setjið inn í ísskáp í 30 mínútur.
  3. Rúllið deiginu þunnt út á borði með smáveigis af hveiti. Leggið deigið í smurt mót, þannig að deigið þekji botninn og kantana að innanverðu. Skerið deig frá sem fer yfir kantana. Setjið í frysti í 1 tíma.

 Aspasfylling

  1. Skolið aspasinn og brjótið endann af. Skerið aspasinn til þannig að hann passi í formið.
  2. Pískið egg, rjóma og sinnepið saman og kryddið með estragon, salti og pipar.
  3. Hitið ofninn á 200°C.
  4. Raðið aspasinum og tómötum á tertubotninn og hellið eggjamassanum yfir.
  5. Bakið tertuna í ofni í 25-30 mínútur eða þar til eggjamassinn er fastur.

 Hjartasalat með feta

  1. Hrærið sítrónusafa, sinnep, hunangi og ólífuolíu saman og kryddið með salti og pipar.
  2. Raðið salatinu á disk og dreypið dressingunni yfir.
  3. Saxið pistasíurnar og stráið yfir bökuna. Myljið síðan fetaostinn og sáldrið yfir salatið.
Thinkstock
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert