Sósan sem tekur grillmatinn upp á næsta stig

mbl.is/Hanna Þóra

Þessi meistarasnilld er úr smiðju Hönnu Þóru sem gerir gott betur og hefur sett saman kennslumyndband sem sýnir réttu tökin. 

Fyrir alla áhugasama er hægt að nálgast síðuna hennar Hönnu HÉR.

Hvítlauksmajónes sem gerir allt betra 

  • 2 eggjarauður
  • 1 tsk. sítrónusafi
  • ½ tsk. dijon-sinnep
  • 2 hvítlauksrif – pressuð
  • 1 dl olía
  • Saltflögur

Aðferð:

Eggjarauður settar í hrærivélarskál og þeyttar (sjá myndband fyrir neðan)
Sítrónusafi settur út í og þeytt áfram. Þar næst er sinnepi og hvítlauk þeytt saman við
Olíu hellt rólega í mjórri bunu í skálina og allt þeytt saman
Að lokum er saltflögum stráð yfir – þeytt aðeins áfram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert