Ómótstæðileg skyrkaka með kaffi- og kanilbragði

mbl.is/Gígja S. Guðjónsdóttir
„Ég er komin með æði fyrir öllu með kaffibragði, ég prófaði kaffi og vanilluskyr um daginn og hugsaði þetta bragðast eins og desert. Svo ég ákvað að skella í einn kaffidesert. Kaffi og kanill fer líka svo einstaklega vel saman,“ segir Gígja S. Guðjónsdóttir um þessa dásemdarköku sem er eiginlega skyldusmakk. 
Matarbloggið hennar Gígju er hægt að nálgast HÉR.
Ómótstæðileg skyrkaka með kaffi- og kanilbragði
  • 200 gr. LU kanil kex
  • 100 gr. smjör frá MS
  • 500 gr. rjómi frá Gott í matinn
  • 600 gr. kaffi- og vanilluskyr frá KEA
  • Kaffisúkkulaði
Aðferð:
  1. Kexið er mulið smátt og smjörið brætt í potti við lágan hita. Smjörinu er síðan hellt yfir kexið og því þjappað vel ofan í formið.
  2. Rjóminn er þeyttur og skyri og súkkulaðispæni af eins og einni lengju af kaffisúkkulaði blandað varlega við rjómann.
  3. Skyrblöndunni er dreift yfir kexbotninn og kakan skreytt með kaffisúkkulaði eða öðru sem ykkur finnst passa með.
  4. Kakan er höfð í ísskáp í minnst 3 klst. áður en hún er borin fram, en mér finnst best að hafa hana í kæli yfir nótt.
mbl.is/Gígja S. Guðjónsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert