Svona steikir þú eldheita ástarpunga

mbl.is/Salt eldhús

„Þó það væri ekki nema fyrir nafnið eru þeir ómótstæðilegir ástarpungarnir,“ segir Sirrý í Salt eldhúsi og við gætum ekki verið meira sammála. „Þeir eru mun fljótlegri að henda í en kleinur og þar að auki með rúsínum sem sum okkar elska en aðrir alls ekki. Nýsteiktir með mjólk eða kaffi eru þeir dásamlegir og minna sum okkar á sumarkvöld í sveitinni.“

Hér gefur að líta uppskrift frá Sirrý sem engan ætti að svíkja.

Ástarpungar
  • 4 bollar hveiti
  • 1 bolli sykur
  • 4 tsk. lyftiduft
  • 2 egg
  • 1 ½ bolli mjólk
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 1 dl rúsínur
  • ¾ -1 lítri matarolía

Aðferð:

Í uppskriftinni eru notuð bollamál. Setjið hveiti, sykur og lyftiduft í skál og blandið saman. Brjótið eggin út í og hellið mjólkinni ásamt vanilludropunum í. Hrærið saman í samfellt deig með sleif. Bætið síðan rúsínum út í og hrærið saman við. Hitið olíuna í meðalstórum pott. Mótið litlar kúlur úr deiginu með 2 litlum matskeiðum og steikið í olíunni þar til ljósbrúnir. Passið að hafa þá ekki of stóra því þá eru þeir lengur að steikjast og geta verið hráir innaní. Eins þarf að passa að olían verði ekki of heit svo þeir verði ekki of dökkir. Dásamlega góðir nýbakaðir með kaffi eða mjólk.Úr uppskriftinni fást 34-36 stykki.

mbl.is/Salt eldhús
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert