Kokka stækkar um helming

Guðrún Jóhannesdóttir, eigandi Kokku.
Guðrún Jóhannesdóttir, eigandi Kokku. Arnþór Birkisson

Guðrún Jóhannesdóttir hefur ásamt fjölskyldu sinni rekið verslunina Kokku á Laugavegi í rúm átján ár. Kokka er sérverslun með eldhúsvörur, eða dótabúð fyrir matgæðinga eins og einhver komst að orði. Verslunin stendur á tímamótum þessa dagana, en Guðrún festi sér nýverið húsnæði sem mun gjörbylta versluninni sem sælkerar landsins hafa svo mikið dálæti á.


Það er glaðbeitt Guðrún sem heilsar okkur enda blekið varna þornað á undirskriftinni en hún var rétt í þessu að skrifa undir nýjan samning sem stækkar verslunina Kokku um meira en helming. Guðrún segir að stækkunin eigi sér töluverðan aðdraganda og hún hafi oft velt því fyrir sér hvað myndi gerast ef rýmið við hliðina á Kokku losnaði. „Svo gerist það í vor að Herrahúsið flytur og húsnæðið losnar. Þetta er stærðarinnar húsnæði á þremur hæðum sem þarf að gera mikið fyrir,“ segir Guðrún því rýmið mun þarfnast mikilla endurbóta en möguleikarnir eru óþrjótandi. „Fyrst um sinn opnum við aðeins yfir á fyrstu hæðina og stækkum því verslunarplássið um helming. Síðan þarf að ákveða hvað verður gert á hæðinni fyrir ofan en möguleikarnir eru margir. Um er að ræða stærðarinnar rými með glæsilegu útsýni. Möguleikarnir eru vissulega óþrjótandi og ljóst að miðborgin á gott í vændum.“

Kokka nýtur mikilla vinsælda meðal matgæðinga.
Kokka nýtur mikilla vinsælda meðal matgæðinga. Arnþór Birkisson

Miðborgin í blóma

Guðrún blæs á allt tal um að verslun í miðborginni sé á undanhaldi. Miðborgin hafi vissulega tekið miklum breytingum á undanförnum árum en þær breytingar séu af hinu góða. „Borg er lifandi og þá ekki síst miðborgin sem er fjölfarnasta hverfi borgarinnar. Hér hefur verið mikil endurnýjun og uppbygging og það er að skila sér margfalt til baka. Endurnýjun á gömlu húsnæði, endurbætur og þar fram eftir götunum, svo ekki sé minnst á þá fjölgun verslana og veitingastaða sem verið hefur. Í frétt sem birtist á dögunum var sagt frá því að 60 nýir aðilar hefðu hafið rekstur í miðborginni. Það er gríðarlega mikill fjöldi og sýnir þróunina sem er í gangi. Svo má heldur ekki gleyma því að það tekur tíma fyrir svæði að ná jafnvægi. Það var til dæmis talað um það á sínum tíma að Laugavegurinn væri að breytast í eina stóra lundabúð en sú þróun hefur breyst og þeim er að fækka. Það er eðli hlutanna að þeir finna sér farveg.“

Viðskiptavinirnir hlynntir göngugötu

Að sögn Guðrúnar er hún hlynnt áformum borgarinnar um að breyta Laugaveginum í göngugötu. „Það eru auðvitað skiptar skoðanir um það meðal rekstraraðila en það sem skiptir höfuðmáli er að meirihluti borgarbúa sé fylgjandi því. Það er auðvitað mikilvægasta atriðið því við verslunarfólk getum haft hvaða skoðun sem er en ef viðskiptavinirnir skila sér ekki er þetta búið spil. Við vorum með óformlega skoðanakönnun hér í búðinni þar sem við inntum fólk eftir þess skoðun og niðurstaðan var að 70% viðskiptavina okkar voru hlynnt áformum um að breyta Laugaveginum í göngugötu,“ segir Guðrún. „Fólk kannski áttar sig ekki á því en það hefur orðið svo mikil breyting og það er svo margt fólk á Laugaveginum. Það er af sem áður var. Hér er mikið líf og mikil stemning.

Það er oft talað um að það séu bara ferðamenn á Laugaveginum en það er einfaldlega ekki rétt. Hingað koma Íslendingar í stórum stíl og langstærsti hluti viðskiptavina okkar er íslenskur,“ segir Guðrún sem segir kúnnahópinn jafnframt vera mjög fjölbreyttan. „Ég get ekki lýst hinum dæmigerða Kokku-kúnna,“ segir hún brosandi, „en ég hef fengið hingað inn allt frá ungum krökkum með klink í vasanum að kaupa gjöf handa mömmu sinni upp í rígfullorðna sælkera. Það mætti kannski segja að Kokku-kúnninn sé allir þeir sem hafi gaman af því að borða mat og matbúa“.

Hér gefur að líta húsnæðið við hliðina á Kokku en …
Hér gefur að líta húsnæðið við hliðina á Kokku en verslunin stækkar um helming við það að opna á milli. Arnþór Birkisson

Gæðin skipta máli

Kokka sérhæfir sig í vönduðum vörum og Guðrún er dugleg að predika að fólk kaupi sér færri en vandaðari hluti. „Í raun þarftu fátt annað en góðan hníf í eldhúsið. Alvöruhníf úr góðu stáli sem endist ævilangt.“ Guðrún segist merkja ákveðna þróun í þessum málum. „Fólk er orðið meðvitaðra og ábyrgara,“ segir hún og vísar þar til kauphegðunar fólks sem leggi meira upp úr gæðum og endingu. Starfsfólk Kokku veitir gjarnan ráðgjöf um rétta meðhöndlun vörunnar sem aftur tryggir betri endingu. Svo er boðið upp á margvíslega þjónustu eins og brýningu á hnífum en deigur hnífur kemur að litlu gagni. Það er um að gera að koma með hnífana sína í Kokku þar sem heimiliskokkar mæta reglulega með græjurnar í brýningu. Þetta er hluti af þjónustunni sem Kokka býður upp á.

Í ár fagnar Kokka jafnframt 15 ára afmæli vefverslunarinnar en kokka.is hefur verið mikilvæg fyrir verslunina. „Það fara flestir á netið áður en þeir koma í búðina,“ segir Guðrún. „Það má segja að vefsíðan sé stærsti búðarglugginn okkar. Fólk fer þarna inn og kynnir sér úrvalið, skoðar vörunar og kemur svo gjarnan í búðina til að handfjatla vöruna. En það hefur einnig aukist jafnt og þétt að viðskiptavinurinn fái sent heim. Mest hefur aukningin í vefsölu verið síðustu tvö ár.“

Fjölskyldufyrirtæki fram í fingurgóma

Þó að Guðrún standi í brúnni stendur öll fjölskyldan að baki henni. „Þetta hefur verið fjölskyldurekstur frá upphafi. Hér höfum við hjónin staðið vaktina og börnin okkar líka. Auður systir mín er hérna með mér og börnin hennar væntanlega líka um leið og þau eru orðin nógu gömul,“ segir Guðrún. „Ætli meðalaldurinn sé ekki í kringum tólf ár þegar krakkarnir fá það verkefni að verðmerkja vörur og hjálpa til þegar mikið er að gera. Sem stendur er yngsta dóttir hennar Una að störfum í búðinni en eldri börnin tvö, Ástríður og Þór, hafa einnig starfað við verslunina. Það er svo eiginmaður Guðrúnar, Þorsteinn Torfason, sem er matgæðingurinn á heimilinu en hann sér, að sögn Guðrúnar, um nánast alla eldamennsku á heimilinu enda afar flinkur á því sviði.

Opinber starfsmaður í Þýskalandi

„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á mat og matargerð frá því ég var lítil enda alin upp á heimili þar sem mikið var spáð í mat. Ég hélt fyrsta matarboðið mitt sextán ára gömul og bauð þá upp á indónesískan mat,“ segir Guðrún og brosir að minningunni. Hún hafi alltaf verið „eldhúsnörd“ og Kokka hafi verið langþráður draumur hennar. „Við bjuggum í Þýskalandi og ég var opinber starfsmaður þar þegar við tókum þetta stökk,“ segir hún og sér ekki eftir því. Kokka hefur verið mekka matgæðinga og græjunörda í hartnær tvo áratugi og verslunin löngu þekkt fyrir gæði, þekkingu og gott vöruúrval. „Við erum með yfir 5.000 vörunúmer. Tól til eldunar, borðbúnað og hönnunarvöru í bland.“

Stækkun verslunarinnar er því afar gleðileg tíðindi fyrir viðskiptavini verslunarinnar og Guðrún hyggur á frekari landvinninga. „Þetta þýðir að ég hef meira pláss fyrir eldavélarnar okkar sem eru mjög vinsælar. Hingað til hefur ekki verið mikið pláss fyrir þær í búðinni en það stendur til bóta. Svo er húsnæðið svo skemmtilegt. Laugaveginum var breytt á dögunum þannig að keyrt er upp hluta götunnar. Ég keyrði þessa leið á dögunum og þá blasti við mér hornið sem ég var að taka á leigu og þvílíkt horn.“

Guðrún er, eins og áður segir, búin að ganga frá samningum og fá húsnæðið afhent þannig að nú fara í hönd spennandi og krefjandi tímar áður en hin nýja Kokka mun líta dagsins ljós fyrir lok árs. Ljóst er að það er heldur betur líf á Laugaveginum og framtíðin björt hjá verslun í miðborginni.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert