Mexíkósk kjúklingasúpa með sýrðum rjóma & nachos

mbl.is/Tinna Alavis

Ef það er einn réttur sem þjóðin elskar þá er það mexíkósk kjúklingasúpa. Flóknara er það ekki og hér er útgáfa af súpunni úr smiðju Tinnu Alavis sem engan ætti að svíkja.

Mexíkósk kjúklingasúpa með sýrðum rjóma & nachos

  • Kjúklingalundir/bringur
  • 1 rauðlaukur
  • 5-6 hvítlauksrif
  • 1 askja ferskir plómutómatar
  • Tómatsúpa með chilipipar (frá Sollu)
  • Whole Plum Peeled Tomatoes (frá Biona Organic)
  • 2 grænmetisteningar
  • 2 paprikur
  • 300 ml vatn
  • 300 ml rjómi
  • 125 g rjómaostur

Krydd: Chili Explosion, Salt, Pipar.

Meðlæti: Sýrður rjómi, Nachos (ég notaði svart Doritos), rifinn Mozzarella ostur.

Aðferð:

  1. ‍Steikið kjúklingalundir upp úr íslensku smjöri & kryddið vel með Chili Explosion, salti & pipar. Þegar kjúklingurinn er steiktur í gegner hann tekinn af pönnunni, skorinn í bita & settur til hliðar.
  2. Takið fram pott & steikið rauðlaukinn þar til hann er farinn að mýkjast & bætið þá við hvítlauk & papriku.
  3. Þegar grænmetið er búið að malla á vægum hita í u.þ.b. 5. mínútur er tómatsúpunni & niðursoðnu tómötunum frá biona hellt út í pottinn ásamt einni öskju af ferskum tómötum & 300 ml af vatni.
  4. Leyfið súpunni að malla á miðlungs hita í 4-5 mínútur & bætið þá við 125 g af rjómaosti & 300 ml af rjóma.
  5. Hrærið í súpunni þar tilrjómaosturinn hefur bráðnað & setjið steikta kjúklinginn út í súpuna. Leyfið súpunni að eldast í 15. mínútur þannig það rétt sjóði í henni.
  6. Berið fram með sýrðum rjóma, nachos & rifnum mozzarella osti.
mbl.is/Tinna Alavis
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert