Marengsdraumur með rabarbararjóma

Mjúkur marengsdraumur með rabarbararjóma og ferskum berjum.
Mjúkur marengsdraumur með rabarbararjóma og ferskum berjum. mbl.is/John Bentsson

Má ekki líkja kökum við góðan draum? Þessi er í það minnsta algjör draumur – möndlubotn með fullt af ferskum berjum og flauelsmjúkum rabarbararjóma.

Marengsdraumur með rabarbararjóma (fyrir 6)

  • 4½ eggjahvítur
  • 200 g sykur
  • 200 g möndlur

Rabarbararjómi:

  • 300 g rabarbari
  • 160 g sykur
  • 1 msk. kartöflumjöl
  • 1 vanillustöng
  • ½ L rjómi

Skraut:

  • 500 g blönduð ber, bláber, hindber og jarðarber

Aðferð:

  1. Hitið ofninn á 175°C.
  2. Pískið eggjahvíturnar og bætið sykrinum út í. Pískið alveg stífar.
  3. Hakkið möndlurnar fínt og setjið út í eggjahvíturnar.
  4. Setjið massann í hringlaga form (26-28 cm) klætt bökunarpappír. Bakið í 20-25 mínútur og látið kólna.
  5. Skerið rabarbarann í 2 cm stóra bita og raðið þeim í eldfast mót klætt bökunarpappír.
  6. Dreyfið sykri, kartöflumjöli og vanillukornum yfir rabarbarann og leggið sjálfa vanillustöngina með í formið. Bakið í ofni í 20 mínútur.
  7. Látið rabarbarann kólna og fjarlægið vanillustöngina. Hrærið rabarbarann saman í massann.
  8. Þeytið rjómann og setjið rabarbaramassann út í. Smyrjið rjómanum yfir möndlubotninn og skreytið með ferskum berjum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert