Ása og Emil létu sig ekki vanta

Ása Regins og Emil Hallfreðs létu sig ekki vanta.
Ása Regins og Emil Hallfreðs létu sig ekki vanta. Kristinn Magnússon

Í gær hófst formlega svokölluð saltfiskvika á veitingastöðum um allt land og stendur til 15. september.

Alls taka 13 veitingastaðir þátt í viðburðinum og munu þeir allir bjóða upp á að minnsta kosti  einn saltfiskrétt á matseðlinum. Gestakokkar frá Ítalíu, Spáni og Portúgal munu elda á völdum stöðum.

Markmiðið með saltfiskvikunni er að gera þessari einni verðmætustu útflutningsafurð Íslands hærra undir höfði og auka veg hennar heima fyrir. Löng hefð og saga er fyrir vinnslu saltfisks hér á landi en áður fyrr var öðru fremur notast við saltið til að auka geymsluþol. Í dag er saltið hins vegar notað til að framleiða sælkeravöru sem nýtur mikilla vinsælda víða um lönd jafnt um jól, páska sem og aðra daga.

Í tilefni saltfiskvikunnar eru þrír gestakokkar komnir til landsins; Carlota Claver frá Spáni, Diogo Rocha frá Portúgal og Lorenzo Alessio frá Ítalíu. Munu þau kynna hvernig hægt er að matreiða saltfisk hvert með sínu sniði en öll eiga þau það sameiginlegt að koma frá löndum þar sem saltfiskurinn er í hávegum hafður. Gestakokkarnir munu einnig skipta sér á hluta veitingastaðanna sem taka þátt í saltfiskvikunni og elda á meðan þeir dvelja hér.

Heimasíðu Saltfiskvikunnar er hægt að nálgast HÉR.

Eftirtaldir veitingastaðir taka þátt í saltfiskvikunni:

  1. Bacalao bar, Hauganesi

  2. Báran, Þórshöfn

  3. Einsi kaldi, Vestmannaeyjum

  4. Höfnin, Reykjavík

  5. Hótel Selfoss, Selfossi

  6. Icelandair Hotel Reykjavík Natura, Reykjavík

  7. Kaffivagninn, Reykjavík

  8. Krauma, Reykholti

  9. Matur og drykkur, Reykjavík

  10. Rub 23, Akureyri

  11. Salthúsið, Grindavík

  12. Tapasbarinn, Reykjavík

  13. Von mathús, Hafnarfirði

Meðan á vikunni stendur eru viðskiptavinir sem panta sér saltfiskrétt hjá þátttakendum saltfiskvikunnar hvattir til að birta mynd á Instagram, merkta myllumerkinu #saltfiskvika. Einn heppinn þátttakandi verður dreginn út og mun sá fá ferð fyrir tvo til Barcelona.

Að saltfiskvikunni standa: Matís, Íslandsstofa, kokkalandsliðið og Félag íslenskra saltfiskframleiðenda. Sjá nánar um íslenska saltfiskinn og saltfiskvikuna á www.saltfiskvika.is

Um gestakokkana þrjá:

Lorenzo Alessio er margverðlaunaður matreiðslumaður og hefur m.a. starfað á Michelin-stöðum auk þess að vera meðlimur í ítalska kokkalandsliðinu. Lorenzo er mikill Íslandsvinur en um árabil hefur hann kynnt íslenska saltfiskinn á Ítalíu, m.a. í kokkaskólum og víðar. Lorenzo hefur sótt Ísland heim oftar en einu sinni þar sem hann hefur ferðast um landið og kynnt sér veiðar og mismunandi vinnsluaðferðir saltfisks hér. Frá 2012 hefur hann stýrt veitingastaðnum á Hotel Roma in Cervia auk þess sem hann sinnir störfum á vegum sambands ítalskra matreiðslumanna (Italian Chef's Federation).

Carlota Claver: Þrátt fyrir ungan aldur býr Carlota Claver að mikilli reynslu sem matreiðslumaður en að eigin sögn kviknaði áhugi hennar á mat og matargerð hjá ömmu hennar og móður. Carlota lærði til matreiðslumanns við Hoffman Hospitality School. Hún stýrði í kjölfarið veitingastöðunum Alba Granados og Alba Paris. Í dag á veitingastaður hennar, La Gormanda, í Barcelona hug hennar og hjarta – og þar matreiðir hún m.a. íslenskan saltfisk.

Diogo Rocha er þekktur matreiðslumaður í Portúgal. Auk þess að hafa gefið út matreiðslubækur starfar hann í dag á veitingastaðnum Mesa de Lemos í bænum Silgueiros (u.þ.b. 90 km austan við Aveiro). Undanfarin ár hefur Diogo tekið þátt í kynningum á íslenska saltfiskinum í Portúgal. Kom hann m.a. að kynningarviðburði fyrir almenning í El Corte Inglés-stórversluninni í Lissabon, auk þess sem hann hefur tekið þátt í fjölmörgum öðrum viðburðum á vegum markaðsverkefnis um saltaðar þorskafurðir í Suður-Evrópu sem Íslandsstofa, í félagi við u.þ.b. 25 framleiðendur og sölufyrirtæki á Íslandi, er framkvæmdaaðili að.

Kynningarstarf vegna íslenska saltfisksins erlendis:

Frá árinu 2013 hefur Íslandsstofa í samstarfi við Íslenska saltfiskframleiðendur (ÍSF) haldið utan um markaðsverkefni þar sem íslenskur saltfiskur er kynntur í Suður-Evrópu undir yfirskriftinni „smakkaðu og deildu leyndarmáli íslenska þorsksins“. Markmiðið með verkefninu er að styrkja orðspor og ímynd íslensks saltfisks sem úrvalshráefnis, bæði með því að vekja athygli á upprunanum og sérstöðu hvað varðar gæði og hreinleika.

Mikið var um dýrðir í gær þegar erlendir meistarakokkar matreiddu …
Mikið var um dýrðir í gær þegar erlendir meistarakokkar matreiddu saltfisk eftir kúnstarinnar reglum. Kristinn Magnússon
Kristinn Magnússon
Hér má sjá þau Sigurjón Braga, matreislumann ársins ásamt Snæ­dísi …
Hér má sjá þau Sigurjón Braga, matreislumann ársins ásamt Snæ­dísi Xyzu Jóns­dótt­ur Ocampo, landsliðiskonu. Kristinn Magnússon
Margt var um manninn á kynningunni.
Margt var um manninn á kynningunni. Kristinn Magnússon
Saltfiskurinn sló í gegn enda einstaklega bragðgóður.
Saltfiskurinn sló í gegn enda einstaklega bragðgóður. Kristinn Magnússon
Kristinn Magnússon
Siggi Hall var að sjálfsögðu mættur.
Siggi Hall var að sjálfsögðu mættur. Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert