Kókkakan sem smakkaðist ótrúlega

mbl.is/Gunnar Sverrisson

Kakan með langa nafnið; Coca Cola-rjómaosta-marmarasúkkulaðikaka með pekanhnetum og hvítu súkkulaði, segja þau Halla Bára og Gunni á Home & Delicious um þessa köku sem er vel þess virði að prófa.

„Ótrúlega mjúk og bragðmikil kaka, góður eftirréttur og kókið kemur skemmtilega inn með rjómaostinum. Aldrei prófað að nota kók í köku en það virkar ansi hreint ótrúlega og maður finnur alveg fyrir því. Rjómaosturinn er bræddur með smjöri og er fullkominn til að kalla fram marmaraáhrifin. Verulega þess virði að prófa og njóta til fullnustu.“

Kókkakan sem smakkaðist ótrúlega

Þurrefni:

  • 2 b hveiti (250 g)
  • 1 tsk natron
  • ¼ b kakó (30 g)
  • 1 ¼ b sykur (150 g)

Hrærið þurrefnin vel saman með gaffli í kekkjalausa þurrefnablöndu.

Blaut efni:

  • 2 egg
  • ½ b repju- eða sólblómaolía (1 dl)
  • 1 tsk vanilludropar
  • 1 b kók (2½ dl)

Hitið ofn í 200 gráður. Hrærið saman, þeytið þar til vökvinn hættir að skilja sig og freyðir aðeins. Hellið saman við þurrefnin og blandið vel en varlega. Ekki hræra lengi en náið úr öllum kekkjum.

Í botninn:

  • Kókosflögur eða kókosmjöl
  • Pekanhnetur, saxaðar
  • Hvítt súkkulaði, dropar eða saxað

Hér er það smekksatriði hversu mikið skal nota af hráefnunum. Notið fallegt form eða ofnfast mót. Smyrjið það með smjöri. Stráið kókos í botninn, ásamt pekanhnetum og súkkulaði. Hellið deiginu yfir.

Rjómaostskrem:

  • 110 g smjör, brætt
  • 220 g rjómaostur
  • 250-350 g flórsykur, sætumagn eftir smekk

Bræðið saman smjör og rjómaost. Setjið sykurinn saman við og blandið vel. Hrærið allt saman í kekkjalausa blöndu. Hellið í mjórri bunu yfir súkkulaðideigið í forminu, frá hægri til vinstri, yfir allan flötinn. Takið gaffal, stingið honum létt í deigið og hreyfið hann til og frá, með léttum hreyfingum. Allt til að rjómaostskremið myndi fallegt marmaramynstur í súkkulaðibotninn.

Stingið í heitan ofninn og bakið í um 25-35 mínútur. Alls ekki baka kökuna of lengi, hún á að vera frekar blaut. Fylgist vel með henni og stingið í hana. Berið fram volga eða kalda og með þeyttum rjóma.

mbl.is/Gunnar Sverrisson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert