Pítsubátar með BBQ-kjúklingi

Pizzabátar eru auðveldir og skemmtileg tilbreyting fyrir næsta pizzakvöld.
Pizzabátar eru auðveldir og skemmtileg tilbreyting fyrir næsta pizzakvöld. mbl.is/Spoonforkbacon.com

Klassísk pítsukvöld eru frábær en það má líka bregða út af vananum og prófa eitthvað nýtt og spennandi. Hér eru pítsubátar að sigla með okkur inn í helgina með bbq-kjúklingi og bræddum osti. Það er bara alls ekkert yfir þessu að kvarta.

Pítsubátar með BBQ-kjúklingi

  • Stórt baguettebrauð eða annað sambærilegt
  • 1,5 bollar barbequesósa
  • 2 bollar af elduðum kjúklingi
  • 230 g mozzarellaostur
  • ¼ rauðlaukur, skorinn í þunnar sneiðar
  • svartur pipar
  • kóríander eða vorlaukur til að skreyta

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 200°C.
  2. Skerið brauðið í „báta“ og leggið ofan á bökunarplötu. Smyrjið bbq-sósu ofan á hvern og einn.
  3. Setjið kjúklinginn í skál og restina af bbq-sósunni saman við. Setjið rifinn ost ofan á bátana ásamt bbq-kjúklingi og rauðlauk. Toppið með aðeins meiri osti og piprið.
  4. Bakið í 15-20 mínútur þar til osturinn hefur bráðnað og brauðið léttristað.
  5. Takið úr ofni og látið kólna í 5 mínútur. Toppið með kóríander eða vorlauk.
mbl.is/Spoonforkbacon.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert