Marengsbomba í mörgum lögum

mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir

Þessi kaka er svo falleg að flestir sem líta hana augum fá ígildi aðsvifs eða vænan skammt af hamingju beint í æð. Það er engin önnur en Berglind Hreiðarsdóttir á Gotteri.is sem á heiðurinn af henni en hún segir lítið mál að útbúa kökuna þótt það taki auðvitað smá tíma að gera kökur í svona mörgum lögum.

„Ég mæli með að baka botnana með smá fyrirvara og dúllast svo bara í restinni þegar nær dregur í undirbúningi. Mér fannst kakan betri eftir að hafa fengið að vera í kæli í að minnsta kosti sólarhring.“

Marengsbomba í mörgum lögum

Marengs

  • 6 eggjahvítur
  • 1 tsk. hvítvínsedik
  • 270 g sykur
  • 1 msk. kartöflumjöl
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 2 msk. bökunarkakó
  • 80 g saxað suðusúkkulaði

Aðferð:

  1. Þeytið eggjavítur og edik þar til það byrjar að freyða (geymið rauðurnar þar til þið gerið súkkulaðimúsina).
  2. Blandið saman sykri og kartöflumjöli og bætið saman við eggjahvíturnar í litlum skömmtum.
  3. Þeytið þar til stífir toppar hafa myndast og bætið þá vanilludropunum saman við og þeytið aðeins aftur.
  4. Sigtið að lokum bökunarkakóið yfir blönduna og hellið saxaða súkkulaðinu út í og vefjið saman með sleif.
  5. Teiknið 2 x 2 hringi (um 15 cm í þvermál) hvorn á sína bökunarplötuna íklædda bökunarpappír.
  6. Bakið við 170°C í 55 mínútur og leyfið að kólna í ofninum (best að gera þetta daginn áður og leyfa að liggja í ofninum yfir nótt).

Súkkulaðimús og rjómi á milli laga

  • 270 g suðusúkkulaði
  • 6 eggjarauður
  • 5 msk. sykur
  • 400 ml rjómi (skipt í 200 og 200 fyrir músina)
  • 600 ml af rjómi (til að nota sér fyrir utan músina)
  • hindber og saxað súkkulaði til skrauts

Aðferð:

  1. Bræðið suðusúkkulaðið og leggið til hliðar.
  2. Setjið eggjarauður, 200 ml af rjóma og sykur í skaftpott og þeytið saman.
  3. Hitið eggjablönduna við meðalhita þar til hún þykknar, takið þá af hellunni.
  4. Hrærið brædda suðusúkkulaðið saman við, hellið blöndunni í skál, plastið og setjið í kæli í að minnsta kosti klukkustund.
  5. Þeytið þá 200 ml af rjóma og vefjið í nokkrum skömmtum saman við súkkulaðiblönduna, plastið þá að nýju og kælið aftur í klukkustund.
  6. Hér má þeyta 600 ml af rjóma, hræra aðeins upp í súkkulaðimúsinni og taka til skrautið.

Samsetning

  1. Setjið smá súkkulaðimús á botninn á kökudiskinum til þess að festa marengsinn.
  2. Leggið þá fyrsta marengsbotninn á diskinn og dreifið óreglulega úr ¼ af músinni og þeytta rjómanum.
  3. Endurtakið þar til fjögur lög hafa myndast.
  4. Skreytið þá með ferskum hindberjum og söxuðu súkkulaði.
  5. Best er að geyma kökuna í kæli í nokkrar klukkustundir eða yfir nótt áður en hún er borin fram því þá mýkist marengsinn upp.
mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert