Svona losnar þú við súra lykt úr skóm

Það er fátt verra en táfýluskór!
Það er fátt verra en táfýluskór! mbl.is/Colourbox

Það er fátt súrara í lífinu en súrir skór – en skór eiga til að súrna ef maður svitnar mikið í þeim eða blotnar á tánum. Þá þarftu að kunna listina að búa til ilmpoka fyrir táfýluna.

Allt sem til þarf er:

  • Snæri
  • Efnisbútar á stærð við servíettur
  • Maíismjöl
  • Lyftiduft
  • Ilmolía (ef þú vilt hafa ákveðna lykt)

Aðferð:

  1. Byrjið á því að blanda saman 1 hluta af lyftidufti á móti 1 hluta af maíismjöli í skál og bætið nokkrum ilmolíudropum út í. Blandið vel saman.
  2. Setjið eina góða matskeið af blöndunni fyrir miðju á hverjum efnisbút og bindið fyrir með snæri, þannig um litla poka sé að ræða.
  3. Settu pokana ofan í skóna þína þegar þeir eru ekki í notkun og leyfðu ilmpokunum að fæla fýluna á bak og burt.
mbl.is/Colourbox
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert