Einföld og ódýr súpa sem tryllir mannskapinn

mbl.is/Ragna Björg

Haustið er komið og þá er svo gott að fá sér heita súpu með góðu brauði. Hér er uppskrift að ódýrri og einfaldri tómatsúpu sem tekur stuttan tíma að gera. Það er matarbloggarinn Ragna Björg sem á heiðurinn að uppskriftinni sem ætti að ylja kroppnum á köldum haustdögum.

Hægt er að heimsækja matarbloggið hennar Rögnu HÉR.
Tómatsúpa

Fyrir 4-5

  • 10 stk. tómatar
  • 2 hvítlauksrif
  • 1 1/2 laukur
  • 1 tsk. oregano
  • ólífuolía
  • 1 kjötkrafts/grænmetiskrafts-teningur
  • 400 ml tómatapassata/fersk tómatsósa
  • 400 ml vatn
  • salt og pipar
  • lófafylli af basil
  • 1 tsk. pestó (má sleppa)


Aðferð

  1. Skerið tómatana í tvenn, raðið á ofnplötu með skurðinn upp, hellið ólífuolíu jafnt yfir tómatana, saltið og piprið.
  2. Skerið hvítlauksgeirana þvert langsum og leggið á milli tómatanna
  3. Bakið í ofni í 20 mín. á 230°C.
  4. Á meðan tómatarnir eru inni í ofni steikið við vægan hita laukinn sem þið eruð búin að saxa gróflega niður upp úr 1 msk. af olíu.
  5. Bætið tómötum út í pottinn (ef hvítlauksgeirarnir eru mjög brúnir sleppi ég þeim) með lauknum auk þess að setja vatn, tómatpassata, 1 tsk. oregano, 1 kraft-tening, ca. 10 blöð af basil (saxaðan fínt) og sjóðið saman við vægan hita í 10 mín. Saltið og piprið eftir því sem ykkur finnst.
  6. Hrærið súpuna saman með töfrasprota eða blandara (ath. að fara varlega með heita súpu í blandara).
  7. Saxið nokkur blöð af basil í strimla og setjið út í súpuna rétt áður en hún er borin á borð.


Bragðast vel með nýbökuðu brauði eða grillaðri ostasamloku.

mbl.is/Ragna Björg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert