Helgarkokteillinn er bomba!

mbl.is/cookienameddesire.com

Þessi svalandi drykkur er það sem þú vilt skála í um helgina. Hér er fíkja sem leikur stórt hlutverk í klassískum kokteil sem mun fá bragðlaukana til að dansa. Sæta bragðið í fíkjunni er fullkomið á móti fersku myntunni. Þessi verður að smakkast!

Helgarkokteillinn er bomba!

  • 4 cl ljóst romm
  • 1 tsk. hrásykur
  • ½ lime, skorið í báta
  • Myntublöð
  • ½ fíkja, skorin í báta
  • Mulinn ís
  • Sódavatn

Aðferð:

  1. Settu sykurinn, myntublöðin, lime og fíkju í kokteilglas og byrjaðu að mylja með mortéli.
  2. Settu romm út í glasið og hrærðu vel í.
  3. Fylltu glasið ¾ með muldum ís.
  4. Fyllið með sódavatni og hrærið í.
  5. Skreytið með fíkjubátum og myntublöðum.
Hér er fíkja að spila aðalhlutverkið í kokteil helgarinnar.
Hér er fíkja að spila aðalhlutverkið í kokteil helgarinnar. mbl.is/Colourbox
Hefur þú smakkað fíkjur út í mojito?
Hefur þú smakkað fíkjur út í mojito? mbl.is/cookienameddesire.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert