Ostafylltir aspasvasar

mbl.is/Gunnar Sverrisson

Hér er uppskrift eftir snillingana á Home & Delicious - þau Höllu Báru og Gunna. Flinkara fólk er vandfundið enda er þessi uppskrift alveg upp á tíu.

Sjálf segja þau um uppskriftina að hún sé í senn einföld og falleg. „Hún kemur vel út á diski eða hlaðborði, hún er góð í hádegi eða að kvöldi og það er gaman að búa hana til. Vasarnir eru góðir beint úr ofninum, ekki verri þegar þeir kólna og það er auðvelt að hita þá upp. Uppskrift fyrir 8 vasa. Einföld matargerð og fljótleg.“

Ostafylltir aspasvasar

  • 24 ferskir aspasstilkar, litlir*
  • 1 msk. ólífuolía
  • gott salt og pipar
  • smjördeig**
  • Ísbúi, rifinn***
  • 8 sneiðar hráskinka
  • egg, hrært

* helst lítill aspas, ef stór skerið þvert til að hafa hvern stilk þynnri, þá 12 stk.

** smjördeig fæst í litlum, frosnum plötum í pakka, einnig ófrosið í rúllu – uppskriftin gerir ráð fyrir 8 vösum og þeir nást úr þessum plötum eða rúllu.

*** ísbúi er mjög góður í þessa uppskrift en það má mæla með Tindi, Cheddar, Gouda eða hverjum öðrum osti sem er.

SKREF

Hitið ofn í 200 gráður. Setjið bökunarpappír á bökunarplötu.

Fletjið aðeins út smjördeigið á hveitistráðu borði. Skerið út úr því ferninga sem eru um 10×10 cm á stærð.

Snyrtið aspasinn, skerið neðri endann af honum. Setjið á fat og hellið yfir hann ólífuolíu, stráið salti og pipar yfir og nuddið vel saman.

Brjótið hverja hráskinkusneið saman og leggið á hvern smjördeigskassa. Þá fer aspasinn yfir skinkuna, horn í horn, fjórir stilkar fyrir hvern vasa.

Stráið rifnum osti yfir aspasinn þannig að töluvert sé af honum., um 2 msk.

Brjótið hornin á smjördeiginu yfir aspasinn og lokið vasanum. Smyrjið með hrærðu eggi og saltið aðeins og piprið.

Setjið í ofn og bakið í um 12-15 mínútur. Berið fram heitt en ekki verra þegar farið að kólna aðeins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert