Kjúklingur í karrý með steiktu grænmeti

Hversdagsréttur í allri sinni mynd. Einn í auðveldari kantinum sem …
Hversdagsréttur í allri sinni mynd. Einn í auðveldari kantinum sem allir munu elska. mbl.is/Femina.dk_Columbus Leth

Hversdagsréttur í allri sinni mynd er mættur á borðið. Einn sem er uppáhald allra og klikkar seint. Kjúklingur í karrý með steiktu grænmeti og soðnum hrísgrjónum – fljótlegt og alveg ljómandi gott.

Kjúklingur í karrý með steiktu grænmeti

  • 500 g kjúklingabringur
  • 2 msk. ólífuolía
  • 4 gulrætur
  • 2 blaðlaukar
  • 300 g brokkolí
  • 1 msk. grænt karrýpaste
  • 1 dl grænmetisteningur
  • 1 dós kókosmjólk
  • 2 msk. sítrónusafi
  • Salt og pipar
  • 4 dl hrísgrjón
  • Handfylli steinselja

Aðferð:

  1. Skerið kjúklinginn í bita. Steikið kjúklinginn upp úr helmingnum af olíunni í wokpönnu eða í djúpri pönnu í sirka 5 mínútur. Leggið því næst til hliðar á disk.
  2. Skrælið gulræturnar og skerið í skífur. Skerið blaðlaukinn í skífur. Skerið brokkolí í litla bita. Steikið grænmetið upp úr restinni af olíunni í 2 mínútur. Bætið karrýpaste út á pönnuna og steikið áfram í 1 mínútu.
  3. Setjið kjötið út á pönnuna ásamt grænmetiskrafti og kókosmjólk og látið koma upp að suðu. Lækkið niður á miðlungshita og látið malla í 5 mínútur.
  4. Smakkið til með sítrónusafa, salti og pipar.
  5. Sjóðið hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
  6. Berið kjúklinginn fram með steiktu grænmeti og hrísgrjónum. Dreyfið saxaðri steinselju yfir í lokin.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert