Kjúklingarétturinn sem Gígja elskar

Ljósmynd: Gígja S. Guðjónsdóttir
Stundum þarf ekkert að flækja hlutina. Þessi karrí kjúklingaréttur er sagður svo góðru að það hálfa væri nóg. Það er engin önnur en Gígja S. Guðjónsdóttir, matargyðja með meiru sem fullyrðir það og því ber að treysta.
Sjálf segist Gígja hafa borðað þennan rétt frá því hún var lítill og henni þyki hann alltaf jafn bragðgóður. 
Kjúklingarétturinn sem Gígja elskar
Dugir vel fyrir 4-5 fullorðna
  • 1 tilbúin kjúklingur
  • 300 gr mæisbaunir í dós
  • 2x pokar grjón
Sósan:
  • 3 msk. smjör
  • 1 msk. karrý
  • 3 msk. hveiti
  • 1 bolli matreiðslurjómi
  • 1 bolli vatn eða mjólk
  • 1 kjúklingakraftur
  • salt og pipar eftir smekk
Toppur:
  • Parmesan ostur
  • Chilli flögur / Krydd
Aðferð:

1. Grjónin eru soðin eftir aðferð á pakkningum
2. Kjötið er tekið af kjúklingnum og skorið niður í litla bita
3. Sósan - Smjör er sett í pott og það brætt. Næst fer karrý og hveiti saman við og hrært vel með písk. Þar næst fer rjóminn, vatnið, kjúklingakrafturinn, salt og pipar saman við og hrært vel svo sósan skilji sig ekki.
4. Þegar grjónin og sósan eru tilbúin þá er öllu blandað saman. Grjón, mæis, kjúklingnum og sósunni.
5. Rétturinn er borin fram með parmesan osti, chilliflögum og góður með brauði. Hvítlauks eða naan brauði.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert