Hér er ekkert verið að grínast. Við erum að tala um stökkt beikon, smjörsteikta sveppi og löðrandi ost í einum girnilegasta pastarétt síðari ára.
Það er engin önnur en Tinna Alavis sem á heiðurinn að þessum stórkostlega rétti. Verði ykkur svo sannarlega að góðu...
Kjúklingapasta sem ærir óstöðuga!
Hráefni:
1. Byrjið á því að steikja beikonið þar til það verður fallega brúnt á litinn. Sigtið þá beikonið frá og setjið í skál til hliðar.
2. Steikið kjúklingalundirnar upp úr 50 g af íslensku smjöri þar til eldaðar í gegn. Látið þær kólna og skerið svo í litla bita.
3. Þá er komið að því að steikja sveppina upp úr 50 g af íslensku smjöri, síðan laukinn og að lokum hvítlaukinn.
4. Blandið öllu hér að ofan vel saman.
5. Saxið spínatið mjög smátt og hellið út á pönnuna.
6. Takið fram pott og sjóðið pastað í 3 mínútur. Hellið öllu vatninu af.
7. Bræðið Tind og parmesanostinn í rjómanum í öðrum potti.
8. Setjið pastað út í sósuna og blandið öllu vel saman áður en þið berið réttinn fram.