Kjúklingabringur fylltar með dásemdar osti

Ljósmynd/Tinna Alavis

Kjúklingabringur sem búið er að fylla með osti og gúmmelaði. Er eitthvað betra? Á degi sem þessum er svarið klárlega nei og því þökkum við Tinnu Alavis einlæglega fyrir þessa snilld og bjóðum að sjálfsögðu upp á fylltar kjúklingabringur í kvöldmat. 

‍Spínat- og ostafylltar kjúklingabringur

  • 4 kjúklingabringur
  • 1 poki spínat
  • 1 laukur
  • 4 hvítlauksrif
  • 1 bakki sveppir
  • 1 poki Mozzarella ostur frá Gott í matinn
  • ½ Óðals-Tindur frá MS
  • Gróft salt + svartur pipar
  • Íslenskt smjör til steikingar

Aðferð:

  1. Skerðu lárétta rifu í miðjuna á kjúklingabringunni þannig að myndist eins konar vasi.
  2. Næst er laukur, hvítlaukur og sveppir steikt á pönnu við miðlungshita. Setjið í skál til hliðar.
  3. Steikið spínatið í stutta stund þar til safaríkt og mjúkt og skerið smátt.
  4. Takið stóra skál og hellið mozzarella-ostinum ofan í ásamt rifnum Óðals-Tindi.
  5. Blandið steikta grænmetinu vel saman við ostinn ásamt spínatinu.
  6. Setjið fyllinguna ofan í vasann á kjúklingnum. Mér finnst best að halda fyllingunni inni í bringunni með tannstönglum (sem eru svo teknir úr áður en maturinn er borinn fram).
  7. Kryddið bringuna fyrir steikingu með grófu salti, svörtum pipar og eðalkjúklingakryddi.
  8. Steikið bringurnar upp úr íslensku smjöri þar til þær eru farnar að brúnast. U.þ.b. 5 mínútur á hvorri hlið.
  9. Setjið bringurnar í eld­fast mót og bakið í ofni á blæstri (180°C) í 30 mín­út­ur eða þar til fulleldaðar.
  10. Fyllinguna sem verður eftir finnst mér gott að setja ofan í eldfasta mótið til hliðar.
Ljósmynd/Tinna Alavis
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert