Fitnessfóður sem bragð er af

Hreint út sagt geggjuð eggjahræra.
Hreint út sagt geggjuð eggjahræra. mbl.is/sæson.dk_Henrik Freek

Það er akkúrat svona sem við viljum byrja morgnana okkar – með eggjahræru og ofnbökuðum tómötum. Hér er veislumáltíð af bestu gerð sem mun leiða þig vel inn í daginn.

Eggjahræra sem bragð er af

  • 500 g tómatar
  • 2 tsk. ferskt timían, saxað
  • 2 msk. ólífuolía
  • Flögusalt
  • 5 egg
  • 2 msk. mjólk
  • Handfyllli ferskar kryddjurtir, t.d. steinselja, púrrulaukur, basilika
  • 1 msk. smjör
  • Salt og pipar
  • Handfylli spínat
  • 4 rúgbrauðssneiðar

 

Aðferð:

  1. Skerið tómatana í báta og veltið upp úr ólífuolíu og timían. Dreifið tómötunum á bökunarpappír á bökunarplötu og dreifið salti yfir. Bakið í ofni við 100° í 3-4 tíma.
  2. Hrærið egg með mjólk og söxuðum kryddjurtum. Hitið smjörið á pönnu og setjið eggjamassann á pönnuna – hrærið varlega í. Kryddið með salti og pipar.
  3. Berið fram eggjahræru með spínati, bökuðum tómötum og rúgbrauði.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert